Færsluflokkur: Bloggar
26.5.2008 | 19:50
Í grillveislu til litlu systur í Bolungarvík
Maturinn smakkaðist sérdeilis vel og svo sátum við þarna og spjölluðum saman, ég, Anna María, Gummi, Tinna, Ingibjörg og Anna Lind. Tinna kom rennblaut heim en krakkarnir voru að leika sér í ánni við brúna og nutu þess að vera úti í góða veðrinu. Ingibjörgu leiddist að bíða með skákina eftir matinn og hún spurði því frænda sinn kurteisilega "Robbi, eigum við bara ekki að segja að ég hafi unnið skákina?" -Jújú, sagði ég enda vissi ég að orrustan var gersamlega töpuð. Ég þurfti bara aðeins að jafna mig á því að svona ung stúlka gæti unnið mig í skák.
Þegar ég ætlaði að kveðja var Anna Lind komin í stígvél og vildi koma með frænda sínum á Suðureyri. Og auðvitað tók ég mynd af henni, þessari litlu sætu dúllu með rauða hárið. Alger krúsidúlla. Svo kvaddi ég þau öll og hlakka til að hitta þau aftur. Það er reyndar ekki nema 30 mín akstur frá Suðureyri til Bolungarvíkur, þannig að við eigum örugglega eftir að hittast oft í sumar.
Kveðja
Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2008 | 15:59
Beitt fyrir stórlúðu
Í dag kíkti ég inn í skemmuna hans Valla á Suðureyri og þar var minn maður að beita á Haukalóð. Ævar Einars varð sér úti um eitt bjóð og skiptust þeir á að beita. Þeir skáru niður smáufsa, sára og rauðmaga sem þeir beittu á krókana. Stefnt er að leggja línuna með kvöldinu hér fyrir utan og ég mun fljóta með og taka nokkrar myndir af þeim köppum. Ef veður leyfir, þá drögum við línuna annað kvöld. Það verður því spennandi að sjá hvað kemur upp. Meira um það síðar.
Í gærdag setti einn Þjóðverji í 40-50 kg lúðu sem kom upp á eftir litlum þorski sem hann var að draga inn. Lúðan gleypti þorskinn og festi sig á krókinn í leiðinni. Mikil hamagangur var um borð því það er ekki á hverjum degi sem menn setja í stóra lúðu. En því miður, þá slapp lúðan og synti niður í sandinn eftir stutta en snarpa baráttu. Þessar fréttir hleypti miklu "lúðuæði" af stað og þegar ég skrapp hér útfyrir eftir hádegið mátti sjá fjölmarga báta á grunnslóðinni og allir voru þeir að reyna við lúður. Vonandi ná þeir einhverri lúðu í dag eða næstu daga.
Einn bátur náði 6 kg lúðu í Önundarfirði í gærdag og var hún étinn um kvöldið í matarveislu Þjóðverjanna. Þannig að þetta er vonandi allt að bresta á. Þegar ég kíkti á höfnina seint í gærkveldi hitti ég þrjá kalla sem voru að koma inn og tveir af þeim náðu vænum þorskum, eða 16 kg og 22 kg að þyngd. Voru þetta stærstu þorskar sem þeir höfðu veitt. Alltaf gaman að sjá þá þegar þeir lýsa viðureigninni fyrir mér. En ég smellti af þeim myndum sem fylgja hér.
Læt þetta duga að sinni. Maður er öllum stundum við höfnina að fylgjast með þessum köllum og auðvitað gerast ævintýri af og til og þá er um að gera að njóta þess með þeim og samgleðjast. Kem með frekari fréttir um leið og eitthvað gerist með lúðurnar, hvort sem þær veiðast á Haukalóðina eða á sjóstöng. Ég held, svei mér þá, að það sé komið sumar.
Með Suðureyrarkveðju
Róbert Schmidt
S: 840-4022
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2008 | 15:13
Af stórþorskum
Eins eru þeir að veiða stóra steinbíta sem línubátarnir eru ekki að fá um þessar mundir. Steinbítarnir eru frá 6-10 kg þeir stærstu. Í fyrra veiddust ekki svona stórir steinbítar að sögn þeirra sem þekkja vel til. Það var margmenni á höfninni í morgun að fylgjast með lönduninni og svo kom sá gamli og tók stórþorskinn í fangið og ég tók mynd af kappanum. Meira síðar.
Kveðja að vestan
Robbi þorskur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.5.2008 | 21:34
Höfnin er lífæð allra sjávarplássa
Þegar veður er stillt og sólin skín er fleira fólk á ferli en venjulega. Og á kvöldin þegar trillurnar týnast til hafnar fyllist hafnarsvæðið af fólki sem spókar sig um, spjallar og hlær. Þegar ég var púki lék ég mér alla daga sumarsins við höfnina, ýmist að veiða eða skoða bátana, safna hálf ónýtum hnífum eða dunda með snæris spotta. Þar var fjörið og er þar enn. Margar af mínum bestu minningum koma frá höfninni á Suðureyri. Í gamla daga fengum við púkarnir far með trillunum frá Ísversbryggjunni alla leið inní stóru höfnina. Leiðin var löng í þá daga og frábært að kallarnir leyfðu okkur að fara með. Í dag fengi engin púki að fara með nema vera með skriflegt leyfi foreldra og í björgunarvesti. Breyttir tímar, ójá. En sem betur fer þá naut maður þeirra gífurlegu forréttinda að alast upp frjáls á milli fjalls og fjöru án takmarka og reglna. Þær voru óskrifaðar og við strákarnir vissum muninn á réttu og röngu þótt stundum brotnaði ein og ein rúða af "sjálfu sér".
Engar tölvur voru til að trufla í þá daga, farsímar, I-pod, flatskjáir né nútíma leikföng. Bara gamli góði fótboltinn, teygjubyssan, örvabogi úr bambus, gúmmístígvél, snærisspottar, vasahnífar, hamar og nagli. Eitt sumarið smíðuðum við strákarnir timburfleka úr stolnu byggingarefni sem var að vísu afgangsefni og ónýtt þannig lagað. Svo rérum við á þessum manndrápsfleytum yfir í stóru höfnina eins og ekkert annað væri sjálfsagt. Þá, reyndar, fengum við smá skammir í hattinn. En við bárum alltaf virðingu fyrir þeim eldri og vorum hræddir við kallana ef þeir hvesstu sig í framan. Hlýddum eins og hundar á flótta.
Höfnin hefur breyst mikið frá því hér áður. Þá lá þar togarinn Elín Þorbjarnardóttir, línubátarnir Sigurvon, Kristján Guðmundsson og Ólafur Friðbertsson. Trillurnar skiptu tugum. Beitingarskúrarnir voru stútfullir af duglegum mönnum í köflóttum skyrtum og kaffibrúsinn stóð á hillunni til þjónustu reiðubúinn. Frystihúsið var líka fullt af verkafólki og ljómi og líf yfir plássinu. Svo kom kvótinn, hann gekk sölum og kaupum, braskið, flóttinn, bátar seldir burtu, sumir fóru á hausinn, aðrir seldu og keyptu minni báta, sumir græddu á meðan aðrir héldu sjó og horfðu í mölina sárir en í veikri von um að allt yrði eins og áður var. Já, vissulega hefur margt breyst en það þarf samt ekki endilega alltaf að vera slæmt. Mér finnst jákvætt bara ef eitthvað líf er við höfnina heima. Þessar fáu hafsins hetjur sem staðið hafa af sér brotsjó í áratugi eru enn að og nýir teknir við í bland. Meira segja menn sem eru komnir á áttræðis aldurinn leggja rauðmaganet hér í firðinum og hafa aldrei veitt annað eins frá því menn fundu upp netið.
Ég er stoltur af höfninni heima og finnst gaman að koma þar við. Hún er sjaldnast tóm og líflaus. Æðurinn úir, hávellan syngur og mávarnir kyrja sínar óperur svo bergmálar í nærliggjandi húsum. Svona á höfnin að vera, þannig þekkir maður hana best.
Kveðja að vestan
Róbert
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.5.2008 | 00:57
Suðureyrarbréf Nr II
Síðasta vika var frekar erfið veðurfarslega fyrir þá sjóstangaveiðimenn sem hér hafa dvalið. Þrátt fyrir bræluskít, þá róa þessir kallar nokkuð stíft miðað við heimamenn. Kannski ekki að furða því þeir hafa lagt mikið undir og eru komnir langa leið fyrir ævintýrin. En náttúran hefur sinn gang og það er ekki hægt að ráða við veðrið. Ég hef fylgst með þeim þremur hópum sem hafa verið á sjó sl daga og í morgun fengu Tékkarnir nokkra væna þorska, frá 16-18 kg fiska sem eru stórir og þungir að draga inn. Um borð í þeim báti var kvikmyndatökumaður og blaðamaður en þeir munu birta umfjöllun um ferðina þeirra í sjóstangaveiðiriti ásamt sjónvarpsþætti. Þessir karlar eru þaulvanir og hafa veitt víða um heim og eru þekktir á sínu sviði.
Veðrið í dag (mánudagur 5 maí) var fallegt, sólskin og logn í fallega firðinum. Enn er nokkur snjór í fjöllum en búast má við að hann hverfi hægt og rólega á næstu vikum. Rauðmagakarlarnir hafa fengið nóg í soðið og hafa tekið netin upp. Egill Kitt og Bjössi Kristmans hafa veitt rúmlega 1700 rauðmaga í fimm ferðum sem er alveg makalaus góð veiði. Börnin léku sér á reiðhjólum í dag og fólkið spókaði sig um göturnar, flutningabílarnir óku sinn hring og sumir tóku til í görðunum sínum.
Á sunnudagskvöldið skrapp ég í heimsókn til Magga Hinriks vinar míns sem er nú kominn frá Sauðárkróki alla leið vestur í Önundarfjörð til að hlúa að æðarvarpinu á ættaróðalinu Innri-Veðrará. Maggi hafði veitt nokkrar bleikjur og bauð til veislu. Við ræddum um tófuveiðar og æðarvarpið fram eftir kvöldi. Tókum svo nokkur æfingaskot úr rifflunum okkar því kvöldið áður var ein tófa að sniglast við húsið og hana þarf að fella áður en hún gerir skaða í varpinu. Æðarfuglinn vappar um og leitar hreiðurstæðis á kvöldin og það styttist í varp. Sumrið er á næsta leiti en um síðustu helgi snjóaði kröftuglega svo farfuglarnir klóruðu sér í stélinu. Í dag þegar ég átti leið til Flateyrar sá ég haförn sem stefndi beint inn að æðarvarpinu hans Magga og Steina á Tannanesi. Var ég fljótur að láta Magga vita.
Um daginn þegar ég var á hafnarröltinu mætti ég grágæs við hafnarvigtina. Sú virtist róleg og þegar ég nálgaðist hana hvæsti hún bara á mig. Og svo beit hún í löppina á mér og ég skellihló, fannst þetta ótrúlegt hugrekki hjá gæsinni því hún vissi ekki blessunin að hún var að bíta einn alræmdasta fuglamorðingja norðan hnífs og gaffals. Svo fékk ég upplýsingar um að Ævar Einarsson hafði alið tvær gæsir um tíma og nú fljúga þær hér um allt eins og orrustuþotur á milli húsa og í dag sá ég eina við Galtartánna.
Í dag (þriðjudag 6 maí) komu átta hópar frá þýskalandi sem staldra við í vikutíma eins og alltaf. Þeir dreifast á Flateyri og Suðureyri. Uppúr 20. maí koma svo hóparnir með reglulegu viku millibili út allt sumarið. Allur dagurinn fór í að skipuleggja móttöku þessara hópa og kvöldi fór í að útskýra fiskimiðin, hætturnar við strendurnar, hvaða agn er best og hvaða fiskitegundir veiðast á miðunum hér úti. Allir hóparnir voru kátir í kvöld enda fallegt veður og gott í sjó frameftir degi á morgun en svo spáir bræluskít fram að helgi sem er alls ekki gott fyrir þá.
ps. Tók þessar myndir í veðurblíðunni í Súgandafirði í dag.
Læt þetta duga að sinni.
Kveðja að vestan
Róbert
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2008 | 12:10
Suðureyrarbréf Nr 1
Í hverri viku (á þriðjudögum) koma tvær Fokker Freindship vélar frá Reykjavík til Ísafjarðar með fullfermi af Þjóðverjum með sjóstangir og þýska snapsa J Allir vilja veiða sömu risa-lúðuna sem veiddist í fyrrasumar en hún vó 175 kg og mældist 240 sm á lengd. Lúðan veiddist á bát frá Hvíldarkletti að sjálfsögðu og er nærst stærsta lúða sem veiðst hefur í Evrópu á sjóstöng. Sú stærsta veiddist í Noregi og vó 10 kg meira en Suðureyrarlúðan góða (hægt er að sjá myndskeið af þessari lúðu á www.fisherman.is ). Einnig vilja þeir veiða steinbít sem er frekar erfitt að fá á sumrin á sjóstöng, þannig að það er lúða og steinbítur sem þeir vilja og risa-þorskar. Þeir þorskar sem þessir kallar eru að veiða eru engin smá seiði. Við erum að tala um 25-35 kg þorska sem eru gríðarlegar skepnur að sjá. Heimamenn og aldraðir sjóarar hafa aldrei séð aðra eins þorska og það má teljast fréttnæmt.
Ég er búinn að vera hér í vikutíma og félagi minn á móti mér heitir Julius og er Þjóðverji og kemur frá Angelreisen sem er þýska ferðaskrifstofan sem bókar allar ferðirnar hingað. Julius mun sjá um alla hópa sem koma til Flateyrar í gegnum Hvíldarklett. Við Júlli náum vel saman og erum búnir að bralla mikið sl daga. Höfum farið tvisvar á sjóinn með stangirnar okkar og veitt ágætt af þorski. Mitt hlutverk er að kenna hópunum á bátana en þeir telja 22 stk bátar (sjá mynd í viðhengi) og von er á fleiri bátum í sumar. Einnig sýni ég þeim hvar bestu fiskimiðin eru hér fyrir utan Vestfirðina, kenni þeim að blóðaga fiskinn rétt og vera þeim innan handar með upplýsingar og þjónustu. Þar sem vinnutíminn er frjáls, þá er ég öllum stundum uppá gamla flugvelli að kíkja út fjörðinn til að kanna hvar þeir eru þegar bræla er því þá veiða þeir innfjarða. Annars sér Tilkynningaskyldan á Ísafirði um samskiptin við þessa kalla.
Í dag fóru tveir hópar út á sjó, annar hópurinn er frá Tékklandi og komu þeir í land í kvöld með 400 kg af þorski og tvo steinbíta. Fjórir þorskar voru vel yfir 1 metra að lengd. Áhöfnin brosti hringinn af ánægju enda búið að vera bræla alla daga frá því þeir komu sl þriðjudag. Hinn hópurinn samanstendur af Þjóðverjum en þeir náðu 250 kg í dag af þorski og voru sáttir með það. Þriðji hópurinn er líka frá Tékklandi en sá hópur er frekar sjóveikur og hangir meira í húsi en á sjó. Það minnir mig á að ég þarf að fara á Ísafjörð á morgun til að kaupa tvo kassa af sjóveikistöflum J
Síðustu daga höfum við Júlli reynt að stytta þessum hópum stundir í brælunum. Í gærdag fórum við með Tékkana í skoðunarferð í Íslandssögu sem er frystihúsið á Suðureyri. Þeim var sýnt allt ferlið frá A til Ö hvernig fiskurinn er unnin í neytendapakkningar. Mikil hrifning er meðal þeirra sem fá að njóta og oftast nær er þetta í fyrsta skiptið sem fólkið stígur inn fyrir í frystihús. Einnig eigum við Júlli smá galdratrix fyrir hópana og förum þá með þá inn að Lóni en í það er búið að sleppa náttúrulega villtum þorski af Jens Holm sem er búsettur á staðnum. Jenni hefur gert þetta í mörg ár með frábærum árangri. Málið er að við förum með fólkið inn að Lóninu og berjum steini í fjöruborðið. Eftir nokkrar sekúndur streyma stórþorskar að flæðarmálinu og ef við erum með beitu með, þá éta þorskarnir úr lófa fólksins og ég þarf varla að lýsa ánægju þeirra eftir þessa skemmtilegu heimsókn. Þannig að við Júlli höfum nokkur leynibrögð í erminni þegar hóparnir eru ekki á sjó.
Mannlífið að öðru leiti er frábært á Suðureyri. Allir afslappaðir og rólegir. Nokkrir heimamenn eru óðum að veiða rauðmaga í net. Einn þeirra sem heitir Valli er búinn að fara tíu sinnum á sjóinn hér í firðinum og er búinn að fá 2000 rauðmaga sem er að hans sögn mjög góð veiði og sjaldan eða aldrei hefur veiðst annað eins af rauðmaga í Súgandafirði og er þá mikið sagt. Hinir sem eru líka á netum hafa fengið frá 150-250 rauðmaga í hverri vitjun og það má segja að það ríki hálfgert rauðmaga-gullæði á svæðinu í dag.
Óhætt er að segja að ég fíli mig vel á mínum heimaslóðum. Þekki marga hérna og er að kynnast hinum sem ég þekkti ekki J Er búinn að hitta Grétar frænda, Völu, Oddnýju og Ingólf og börnin þeirra og svo má ekki gleyma litlu systur minni og fjölskyldu í Bolungarvík. Núna er öldungamót í blaki á Vestfjörðum en leikið er á Ísafirði, Suðureyri og á Flateyri. Kíkti á nokkra leiki í kvöld í íþróttahúsinu og þar unnu Tálknfirðingar liðVopnfirðinga í kvennadeildinni.
Læt þetta nægja að sinni. Hef því miður ekki haft mikinn tíma til að setja efni á heimasíðuna mína en bæti úr því hér með og sendi þetta bréf til vina og vandamanna með von um að sjá sem flesta hér í sumar J Bið að heilsa öllum sem ég þekki og vonandi sjáumst við öll í sumar. Reikna með að skella mér í bæinn 17 maí en þá er Svartfuglaveislan hjá Hinu íslenska byssuvinafélagi og Herrifflakeppni sama dag. Maður má ekki missa af svoleiðis atburðum sem formaður félagsins J
Hafið það sem allra best. Ég er sáttur og glaður í vinnunni alla daga. Framunda er vonandi gott sumar og sól.
Kveðja frá Súgandafirði
Róbert Schmidt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.4.2008 | 12:47
Í faðmi hárra fjalla
Ég tók nokkrar myndir í Súgandafirði en mun bæta fleirum í myndasafnið von bráðar. Læt þetta duga að sinni. Er eiginlega ekki kominn í netsamband ennþá en það rætist vonandi úr því um helgina. Meira síðar.
Með kveðju að vestan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.4.2008 | 22:31
Dorgað við höfnina
Þegar við feðgar fórum á svartfuglsveiðar sl laugardag sigldum við framhjá þessum púkum sem undu sér vel með stangirnar sínar um borð í gömlum fiskibáti í Kópavogshöfn. Litirnir eru fallegir og sjórinn sléttur og einhver ólýsanleg kyrrð yfir myndinni. Strákarnir kölluðu allir á eftir okkur "góða ferð og góða veiði" Gaman að þessu. Minnir mann dálítið á æskuslóðirnar fyrir vestan þar sem maður eyddi öllum stundum á bryggjunni með stöngina. Getur verið að maður sé með heimþrá? Ég er ekki frá því að svo sé. En það styttist óðum í brottför vestur eða nk sunnudag.
Góðar stundir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 23:58
Heim í fjörðinn minn
Á sunnudaginn kemur, pakka ég einhverju dóti í jeppann og rúlla vestur í Súgandafjörð, minn fæðingarstað og heimahaga. Ég fæddist á Suðureyri 12. apríl 1965 á Eyrargötu 17. Ég held að það séu komin 13-14 ár frá því ég flutti að vestan en nú liggur leið mín aftur vestur og nú til liðs við ferðaþjónustufyrirtækið Hvíldarklett www.fisherman.is sem er eitt stærsta fyrirtæki landsins sem sérhæfir sig í sjóstangaveiði. Þar mun ég starfa í sumar eða næstu 4 mánuði og ég hlakka til að takast á við þetta skemmtilega verkefni sem vinur minn Elías Guðmundsson bauð mér en hann er einn af eigendum Hvíldarkletts og framkvæmdarstjóri. Gríðarlegur fjöldi þýskra sjóstangaveiðimanna mun heimsækja Súgandafjörð í sumar eða hátt í 2000 manns ef ég fer rétt með. Óhætt er að segja að fyrirtækinu hafi vaxið fiskur um hrygg og á síðasta ári veiddist risalúða í fjarðarminni Súgandafjarðar sem vó 175 kg og mældist 240 sm að lengd. Þetta er líklega stærsta lúða sem veiðst hefur í Evrópu á sjóstöng!
Það verður gaman að akra göturnar og sækja höfnina sem er lífæð þorpsins. Óhætt er að segja að allir þessir ferðamenn setja mikinn og líflegan svip á mannlífið í þessu litla og góða samfélagi sem Suðureyri er. Fjöllin standa vörð um litla þorpið og lognið heima getur stundum verið ólýsanlega mikið. Margir íbúar hafa flutt burtu en margir komið í staðin. Þannig gengur þetta fyrir sig allstaðar í kringum landið okkar og tímarnir breytast og mennirnir með.
Ef ég hef tök á því að taka bátinn minn vestur, þá að sjálfsögðu geri ég það. Ekki slæmt að komast á sjó af og til, þó ekki væri nema renna fyrir þorsk eða kíkja inní fjörð. Þar sem allir bátar Hvíldarkletts verða uppteknir út sumarið, þá er líklega best að ég taka hann vestur. Ég reikna með að ég ljósmyndi mikið fyrir vestan og jafnvel færi inn einhverjar frásagnir á www.sugandi.is þegar fram líða stundir. Það verður amk nóg að gera í vinnunni og þeir frítímar sem fást fara í að heimsækja íbúana heima og ættingja. Systir mín og fjölskylda hennar (Anna María Schmidt) býr í Bolungarvík en þangað er stutt að keyra. Talaði einmitt við Önnu í kvöld og við eigum örugglega eftir að grilla saman í sumar á meðan Gummi og Tinna taka lagið á gítarinn.
En þetta þíðir ekki að ég hætti að blogga. Hugsa frekar að ég eigi eftir að blogga meira en verið hefur. Það er að segja ef einhver nennir að lesa þetta bull mitt hér? Heyrumst hress.
Læt hér fylgja nokkrar myndir af síðunni www.fisherman.is
Góðar stundir
Bloggar | Breytt 16.4.2008 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.4.2008 | 23:28
Frábær afmælisdagur!
Félagar mínir úr Byssuvinafélaginu voru á sjó þennan dag en á sitthvorri fleytunni. Siggi Þórodds og Siggi Konn. Þeir voru á heldur stærri bátum en við. Arnór sat í stefni, vel dúðaður og Róbert jr sat á miðbekknum svo vel klæddur að hann hefði enst í kjarnorkuvetur.Gusurnar dundu á andliti skipstjórans (mér) og þeir hlógu létt drengirnir um borð. Af og til sáum við eina og eina stuttnefju sem Arnór skaut með tvíhleypu nr 20. Ótrúlega hvað þessi 16 ára piltur (1,90 á hæð) var duglegur að munda hólkinn og hitti í hverju skoti (örvhentur í þokkabót). Það segir kannski lítilsháttar um þann góða kennara sem hann hefur J..hohoho.
Bismarc snéri við í ólgusjó skammt undan Keflavík og við feðgar héldum í átt að álverinu, nenntum ekki að göslast í brælunni og því var grunnslóðin besti kosturinn í stöðunni því oft mátti rekast á álkur þar á stangli sem varð raunin. Þegar við drápum á bátnum skammt frá landi til að fá okkur að pissa og éta kom höfrungur upp úr sjónum alveg við stefni bátsins. Róbert jr öskraði Vá pabbi, sástu hvalinn Höfrungurinn synti í kring um bátinn og eitt sinn kafaði hann undir hann og kom örfáa metra frá okkur upp úr sjónum með tilheyrandi látum. Synirnir voru hugfangnir af þessu sjónarspili og tóku andköf. Þetta var í fyrsta sinn sem þeir sáu höfrung og Arnór spurði mig hvort þetta væru alveg eins höfrungar og í bíómyndunum? Svarið var já.
Þegar nær dró Hafnarfirði sáum við rauða bauju og í kringum hana voru ca 15 teistur. Arnór var fljótur að hlaða og negldi þrjár í einu skoti og skaut aðra um leið og hún kom úr kafi. Róbert jr háfaði fuglana upp eins og hann hafði ekkert gert annað um ævina. Greinilega var að drengirnir höfðu þetta veiðiblóð í sér og ekki langt að sækja það J Ég var stoltur af strákunum og mjög ánægður að eyða afmælisdeginum mínum í sjóferð með þeim, vopnaðir haglabyssum og góða skapinu. Ég hugsaði með mér um stund mikið hlakka ég til að veiða með þessum gormum á næstu árum
Ferðin tók enda og Bismarc tók höfn að endingu. Skipstjórinn var saltbarinn og drengirnir hálf veðurbarðir en samt ánægðir en þreyttir eftir öll lætin. Veðrið var ekki alveg eins og spáin hljómaði en síðdegis lægði verulega en þá var komið að lokum veiðiferðarinnar. Það var gott að leggjast að bryggju með ágætis afla sem Arnór skaut, eða 16 svartfugla. Hæfileg veiði en talsverður sjór á leiðinni. Hins vegar voru þeir vel klæddir og þeir brostu bara og hlógu þegar Bismarc lagðist að bryggju í Kópavogshöfn.
Um kvöldið var elduð afmælissteik, nautalundir í piparsteik með bökuðum kartöflum, berneissósu, sveppum og Wolf Blass / Presidents Selection Shiraz 2005 sem rann ljúft niður með steikinni. Sem sagt, afmælisdagur eins og ég óskaði mér og sú ósk rættist fullkomlega. Það var gaman að vera til í dag.
Myndirnar voru teknar í veiðiferðinni í dag og þær segja meira en þúsund orð.
Góðar stundir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)