Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

20 ballöður fyrri tíma

Á Youtube-flippi mínu sl daga gróf ég upp 20 sígildar gamlar ballöður sem hafa verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá því ég var í kringum 13-17 ára gamall vestur í Súgandafirði. Það er alveg makalaust hvað er gaman að rifja upp þessi lög og sérstaklega að sjá orginal myndböndin. Þeir sem hafa gaman af þessum gömlu góðu ballöðunum, endilega leggið við hlustir og commentið hvaða lag eða lög af þessum lista var í uppáhaldi.

Njótið vel Wink  

1. Procoul Harum

http://youtube.com/watch?v=PbWULu5_nXI&feature=related

2. Yvonne Elleman

http://youtube.com/watch?v=76uNR9OUsL4&feature=related

3. Nazaret

http://youtube.com/watch?v=KrSs7gfLDjc&feature=related

4. ELO

http://youtube.com/watch?v=fRxLX2ol0yE

5. Chicago

http://youtube.com/watch?v=Y0TEa-Aa4sU

6. Gilbert O'sullivan

http://www.youtube.com/watch?v=D_P-v1BVQn8

7. Bob Seager

http://www.youtube.com/watch?v=RcDCvQbOdig&feature=related

8. Demis Rousso

http://www.youtube.com/watch?v=7nZKMm-nOsc&feature=related

9. Smokie

http://youtube.com/watch?v=wcVLeUFW-AM

10. Eagles

http://youtube.com/watch?v=IBJTNx5qrVU

11. Susy Quatro & Chris Norman

http://www.youtube.com/watch?v=RGzAW3bTHeI


12.Cat Steves

http://youtube.com/watch?v=Jek6iP6AuAQ

13. Meat Loaf

http://youtube.com/watch?v=p_Tf2lQvDz0

14. Bee Gees

http://youtube.com/watch?v=GpRFeJEG6_o

15. Bee Gees

http://youtube.com/watch?v=rP3ooEXdaVs&feature=related

16. Andy Gibb

http://youtube.com/watch?v=4rAHUsLlAvE

17. Rolling Stones

http://youtube.com/watch?v=AG9p0Zd41cA

18. Queen

http://youtube.com/watch?v=irp8CNj9qBI

19. Dr. Hook

http://youtube.com/watch?v=-oNZyMVTVCE

20. Creedence Clearwater Revival

http://youtube.com/watch?v=TS9_ipu9GKw


Hver man ekki eftir þessu lagi?

Einhver góður orðaði það svo vel hér um árið að þegar menn kæmu kvennmannslausir heim eftir ball og í ástarsorg, þá settu þeir þessa plötu á fóninn og grenjuðu sig í svefn...hehehe. Legðu við hlustir og smelltu á lagið.  


Ógleymanlegir Eagles heiðurstónleikar

Ameríska  (rock-country) hljómsveitin Eagles hefur alla tíð, frá því ég man eftir mér, verið í miklu eaglesuppáhaldi. Ég varð því mjög glaður þegar eiginkonan mín bauð mér á heiðurstónleika Eagles sem fóru fram í Borgarleikhúsinu í gærkveldi. Eyjólfur Kristjánsson (Eyfi) hefur gengið með þennan draum í 20 ár að halda sérstaka Eagles- tónleika þeim til heiðurs því ætla má að þessi heimsfræga hljómsveit, sem hefur verið að í rúm 30 ár, muni ekki koma til Íslands í bráð því giggið kostar litlar 200 milljónir. Eagles hóf feril sinn í kringum 1970 en hætti árið 1980. Það ríkti mikil sorg um allan heim og skoðanakannanir í Bandaríkjunum komust að þeirri niðurstöðu að flestir áttu sér þá heitustu ósk að Eagles kæmi saman og í öðru sæti á óskalistanum var heimsfriður. Hljómsveitin kom aftur saman 1994 með plötunni Hell Freezes Over og með eftirminnilega útgáfu af laginu Hotel California.

Sviðið var glæsilegt og hlaðið hljóðfærum. Þegar hljómsveitarmeðlimir gengu inn var mikið klappað. eyfiÞarna voru saman komnir 12 snillingar sem áttu fyrir sér erfitt kvöld því að stíga í fótspor Eagles er eiginlega ógerlegt. Eagles er bæði stórkostleg radd-söngsveit og hljómsveit sem hefur fullkomnunaráráttu í einu og öllu. Þeir senda ekkert frá sér nema hafa farið yfir það mjög vandlega. Eyfi reið á vaðið með fyrsta lagi kvöldsins Peaceful Easy Feeling sem var glæsilega flutt og ég held að allur salurinn hafi breyst í eina stóra gæsahúð. Eyfi réði auðveldlega við lagið og var flottur í köflóttu stutterma skyrtunni sinni með kassagítarinn. Ekki man ég 100% lagauppröðunina en Davíð Smári kom ótrúlega sterkur inn (þrátt fyrir nýju gleraugun) og söng t.d. Tequila Sunrise og Heartache Tonight með glans. Sigurjón Brink tók lagið Love Will Keep Us Alive sem Timothy B. Schmit söng forðum daga með sinni ljúfu rödd. Einhvern veginn fannst mér Hr.Brink ekki halda taktinum með sínu örvhenta gítarspili og stundum var eins og hann væri einfaldlega ekki að spila á gítarinn. Fór aðeins í taugarnar á mér.

Í fyrstu minnti aðalgítarleikari kvöldsins mig á miðaldra togarasjómann sem hafði villst inná sviðið af Hotel CaliforniaKringlukránni (Hr. Sigurgeirsson). Þótt ég hef aldrei séð kallinn áður vann hann heldur betur á og ef hans hefði ekki notið við, þá hefðu tónleikarnir alls ekki verið eins góðir og þeir voru í raun. Tveir Sálar-meðlimir voru á svæðinu, þeir Friðrik Sturluson bassaleikari og Jóhann Hjörleifsson trommuleikari og voru öryggið uppmálað enda fagmenn á sínu sviði. Birgir Nielsen var einnig á slagverk við hlið Jóhanns og kunni vel til verka. Bingótrommurnar og “Helenu-stokkurinn” klikkuðu ekki. Einnig var gaman að sjá hljómborðsleikarana því annar þeirra tók af og til kassagítar og söng bakraddir af mikilli innlifun. Skeggjaði gítarleikarinn á sviðinu var líka skratti góður. Verst að maður man ekki nöfnin á öllum þessum snillingum.

Jæja, áfram með smjörið. Sigmundur Eagles (Ernir) sjónvarpsmaður, var kynnir kvöldsins. Hann var öryggið uppmálað og talaði tungumál sem allir skildu í salnum. Mikið var hlegið af hnitmiðuðum sögum hans og fróðleikurinn um Eagles var góður. Stuðboltin og stubburinn Friðrik Ómar tók tvö lög og flutti þau óaðfinnanlega. Var í miklu stuði og náði salnum á flug. Innkoma Stefáns Hilmarssonar í laginu New Kid In Town var afleidd að mínu mati. Bæði hélt hann ekki lagi og fipaðist á upphafsorðum. Til að bæta gráu ofaná svart var kallinn nærri dottinn á sviðinu. Í hléinu heyrði ég nokkra sem voru einmitt að tala um sama hlutinn. Einhvern veginn fannst mér hann vita af þessum misstökum þegar hann gekk af sviðinu. En Stebbi kom aftur í seinni hálfleik með lagið Desperado og þá var allt í góðum gír. Björgvin Halldórsson var ágætur í Lyin Eyes. Einnig tók hann Hole In The World með Gospelkórnum sem var þokkalegt en rödd Björgvins var yfirsungin af hinum gríðarsterka Gospelkór undir stjórn Óskars Einarssonar. Mitt mat er að það hefði mátt sleppa stórstjörnunum Bjögga og Stebba. Eyfi og hljómsveitin var í heild sinni það heilsteypt og góð að gestasöngvarar voru óþarfir nema kannski Friðrik Ómar. Eyfi og Davíð Smári voru bestir, svo S.Brink og Friðrik Ómar.

Önnur lög voru leikin eins og t.d. Take It To The Limit, Take It Easy, Wasted Time og að endingu smellurinn Hotel California sem Sigurjón Brink söng. Ég saknaði eins af mínum uppáhalds lagi sem Don Henley söng sem heitir Last Resort. Ef það hefði verið leikið þetta kvöld, væri ég rosalega sáttur. Bakraddirnar voru frábærar en þeir Eyfi, S.Brink, Edgar Smári og Davíð Smári  voru samstilltir út í eitt. Það var líka gaman að heyra nýja lagið þeirra; Busy Being Fabulous sem Friðrik Ómar söng glæsilega af tveggja laga albúminu Long Road Out Of Eden sem kom út á sl ári. Ég sá ekki annað en allir tónleikagestir hefðu skemmt sér konunglega enda ekki á hverjum degi sem ráðist er í svona stórverk að flytja lög eftir Eagles.

Í heildina var ég sáttur með útkomuna. Af tíu mögulegum gef ég þessum tónleikum 8,5 en hefði líklega farið í 9,0 ef hljómsveitin hefði haldið sig við færri gestasöngvara með fullri virðingu fyrir Bjögga og Stebba. Þeir eru einfaldlega ekki með þessar ekta Eagles raddir. Eyjólfur Kristjánsson hefur oftar en ekki unnið stórsigra á þessum vettvangi. Ég fór einu sinni á tónleika sem hann stóð fyrir með Simon & Garfunkel með stórsveit sinni á Hótel Borg. Ógleymanlegir tónleikar. Eyfi er ótrúlega naskur við að ná saman snillingum sem kunna að flytja alvöru tónsmíð. Spurning hvort Eyfi taki ekki heiðurstónleika með Creedance Clearwater Rivavial einn góðan sumardag að ári? Það yrði sko rosalegt.

Til hamingju með frábæra tónleika Eyfi.

Læt lagið Last Resort fylgja sem vantaði á þessa góðu tónleika:



Góðar stundir
  


Boltar og brotnir kertastjakar

IMG_6174Eins og alltaf,  þá eru boð og bönn á öllum heimilum. Það má t.d. ekki sparka bolta í stofunni og passa þarf sérstaklega að kerti séu ekki í skotlínunni. Ég er margbúinn að þruma þessu yfir strákana mína þegar þeir eru í boltaleik í íbúðinni. En eldhúsið er eiginlega utan þessara marka ef svo má að orði komast. Þar förum við feðgarnir oft í leikinn “Grísinn í miðjunni” Þá er einn í miðjunni og reynir að stöðva bolta sem hinir tveir reyna að senda á milli sín. Nú, sá sem klikkar, fer í miðjuna að sjálfsögðu. Gott og vel. Eldhúsklukkan hefur enn ekki brotnað né eldhúsglugginn eða annað sem brothætt telst þar inni, þrátt fyrir langan boltaferil okkar feðga þar inni.

Í gærdag var  von á gestum í matarboð. Mamma og Andrés, Gústi bróðir minn og Berglind dóttir mín voru á leiðinni. Synirnir, Arnór 16 ára og Róbert jr 8 ára, voru í eldhúsinu í boltaleik og ég lá í sófanum að horfa á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Sá yngri kemur síðan hlaupandi til mín og fer eitthvað að þvælast fyrir sjónvarpinu. Stríðir pabba sínum dálítið og ég gríp lítinn svampbolta og þykist henda honum í þann stutta, sem þá stekkur af stað inn ganginn. Við það tekur sig upp gamalt glott á mínum og ég læt svampboltann vaða á eftir þeim litla. En þegar boltinn er hálfnaður í boga áleiðis inn ganginn sé ég að búið var að tendra kerti í stórum glerkertastjökum sem höfðu stóran belg og voru jólagjöf til konu minnar frá bróðir hennar forðum daga. Kertastjakarnir voru þrír og stóðu á kommóðunni við gangvegginn. Ég greip fyrir andlit mitt og um leið hafnaði svampboltinn beint í einum gler kertastjakanum sem féll síðan á einn til viðbótar og báðir flugu þeir á parketið með þvílíkum brothljóðum svo glerbrotin spýttust í allar áttir. Kertavax útum allt og svo kom stutt og afgerandi þögn. Það þarf ekki að segja mikið um það hver var hundskammaður fyrir þetta. Það mátti líka sjá glott í augum sona minna eftir á þar sem þeir sátu grafkyrrir, alsaklausir englarnir. Gestirnir hringdu dyrabjöllunni og mamma sagði um leið og hún sá mig: “Hva, minn bara að sópa og allt. Voðalega ertu myndarlegur.”

Já, stundum  breytist maður í barn og stundum er ansi grunnt á prakkaranum í manni eins og dæmin sanna. Ég var tekinn á teppið fyrir þessa vanhugsuðu leikfléttu sem verður varla endurtekin í bráð. Og núna heyrist frá húsfreyjunni úr eldhúsinu: Strákar og þú Róbert líka, það er bannað að vera með bolta í stofunni. Er það SKILIÐ?

Ps. myndin sýnir þennan eina sem eftir er heill. Annar er liggjandi og brotin í tvennt og sá þriðji fór í frumeindir.

Góðar stundir   

Krúttlegir kettlingar

Á mánudaginn sl vorum við viðstödd þegar kötturinn Tásla gaut fimm kettlingum á baðherbergisgólfið hjá Ingu (mágkona mín), Nonna og börnum hér í Kópavogi. Mikil eftirvænting var á meðal fjölskyldunnar eftir að Tásla kæmi með fyrstu kettlingana sína og það var sérlega gaman að sjá þá koma í heiminn einn af öðrum. Nokkrum dögum síðar kíktum við aftur í heimsókn en þá var Tásla búinn að finna sér og kettlingunum góðan stað í fataherbergi á efri hæðinni og unir sér vel þar. Arnór og Róbert jr voru mjög hrifnir af litlu sætu kettlingunum og Arnór hringdi strax í móður sína og reyndi að kremja útúr henni jáyrði fyrir einni sætri krúsidúllu en fyrir á hann köttinn Simba en móðir hans, Kókó, dó fyrir nokkrum árum 12 ára gömul. Arnór náði ekki að fá jáyrði í þetta sinn en kannski kemur það seinna.

Birna María, prinsessan á heimili Táslu, var búin að nefna einn kettling Tásu sem er dökkur að lit en þeir eru þrír þannig og tveir rauðleitir (Eins og kötturinn Grettir). Ég fékk Birnu til að halda á öllum kettlingunum en þá varð að raða þeim ofan á hvern annan eins og sést á myndinni. Það verður gaman að sjá litlu greyin vaxa á næstu vikum og mánuðum en víst er að flestir verða gefnir á góð heimili. Fyrstu tvær vikurnar eru kettlingarnir blindir en svo fara þeir á stjá um leið og sjónin kemur.

Látum myndirnar tala sínu máli. Krúttlegir kettlingar Tounge

Birna María
 Kettlingar


Liverpool í átta liða úrslit

Liverpool sigraði Inter 1-0 á útivelli í kvöld með glæsilegu marki Fernando Torres. Poolararnir komast Sisso, Reynir og Robert Poolararáfram með 3-0 sigri samanlagt úr þessum tveimur leikjum gegn Inter sem átti aldrei séns. Dregið verður í átta liða úrslitin á föstudaginn en í pottinum verða eftirfarandi lið: Chelsea, Schalke, Roma, Arsenal, Man United, Barcelona, Fenerbache og Liverpool.

Í tilefni leiksins í kvöld bauð ég Reyni bróður og Sigurþóri í grill og bolta. Það var mikið fjör í sófanum á meðan á leiknum stóð og mikil fagnaðarlæti þegar Torres skoraði á 63 mínútu sigurmarkið í leiknum. Áfram Liverpool.

Myndina tók Inga Lilja konan hans Reynis.

Vorið opnar faðminn sinn

Skrapp í síðustu  skarfaveiðiferðina mína um helgina í þessu fína veðri á Snæfellsnesið. Höfrungarnir syntu um allan sjó og fuglalíf var gríðarlega mikið. Náði nokkrum myndum af höfrungum á sundi. Sá einnig veiðimenn á höfrungaveiðum og frétti að þeir hefðu náð tveimur. Seinna um daginn fékk ég 5 kg bita frá þessum veiðimönnum en þess má geta að höfrungakjöt er ótrúlega mikið góðgæti. En veiðin var fín hjá mér og Bismark virkaði helvíti vel. Gaman að láta ferska hafgoluna leika um sig með nóg af skotum og góða skapinu. Læt ekki uppi aflatölur að þessu sinni en ég hef aldrei áður veitt annað eins af skarfi á svona stuttum tíma. Þetta dugar mér út árið. Nú er bara að fara að heiteykja, róspipargrafa og marinera þennan góða sjófugl.
Hofrungar


Það er farið  að voru og dagurinn orðinn langur. Svartfuglsveiðitímabilið hér á Faxaflóanum fer í hámark síðustu viku í apríl og stendur til 10 maí. Þá verður fjör á flóanum enda mikið veitt af svartfugli sem er náttúrulega gríðarlega góður og þjóðlegur matur. Páskarnir eru framundan og vorið að opna sig og teygja út faðminn. Veturinn hopar dag frá degi sem er ágætt. Veturinn hefur verið nokkuð góður, talsvert af snjó og byl en þannig man maður eftir vetrunum fyrir vestan. Ég vil hafa mikinn snjó á veturna en snjólétt sumar Wink

Læt þetta duga að sinni. Meðfylgjandi mynd tók ég sl sunnudag af nokkrum höfrungum sem syntu hjá Bismark.

Góðar stundir

Að breytast í barn

Ég hef lítið  verið hér sl daga en læt fylgja stutta frásögn frá liðinni helgi sem var afslöppun í Gusugangur i pottinumsumarbústað við Úthlíð. Við skelltum okkur með vinafólki í sumarbústað á föstudaginn og áttum ágætis helgi saman. Litli kúturinn var með mér og svo buðum við frænku okkar, Ólafíu Rún, að koma með okkur en hún og Róbert jr eru á sama aldri og þekkjast vel. Vetur konungur í öllu sínu veldi tók á móti okkur og laugardagurinn var ótrúlega fallegur. Sól á himni og logn. Krakkarnir voru í pottinum í rúma þrjá tíma og undu sér með litlar skálar, skeiðar og bræddu snjóinn.

 

Eftir það var  hafist handa við að byggja snjóhús. Ég reyndi að koma þeim af stað en það endaði Snjovirkimeð því að ég kláraði "snjóvirkið" sem hafði ekkert þak. Notaði öxi til að höggva til snjókubbana og börnin bjuggu til rúður í litlu ferköntuðu gluggana í virkinu. Um kvöldið var kertum komið fyrir á nokkrum stöðum og þau tendruð. Litlu frændsystkinin voru ánægð í virkinu þegar ég tók mynd af þeim. En þau lærðu að búa til alvöru virki/snjóhús á þessum degi. Búa til glugga og rúður, þétta virkið með lausum snjó og bleyta það í restina með uppþvottabursta og vatnsfötu til að gera það enn sterkara í frostinu.



Daginn eftir  kenndi ég þeim að ganga á snjóþrúgum sem þeim fannst mjög gaman að prófa. Mér Robert jr a snjotrugumfinnst skrýtið að Íslendingar hafi ekki meðtekið þetta skemmtilega sport, að ganga á snjóþrúgum um hávetur til dægrastyttingar. Það getur verið gaman að arka inní skóginn á góðum degi og þá flýtur maður á snjóþrúgunum og fer hratt yfir. Læt myndirnar tala sínu máli. Helgin var fín og ég breyttist í lítið barn með börnunum og það var einstök tilfinning. Ég tel að foreldrar ættu að gera miklu meira að því að leika við börnin sín og lifa sig inní þeirra hugarheim. Þá upplifir maður líka barnið í sjálfum sér.

Góðar stundir 


Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband