Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Á svartfuglsveiðum í Djúpinu

Skrapp á svartfuglsveiðar með mági mínum, Guðmundi Óskari Reynissyni frá Bolungarvík á 5kosningardaginn í ágætis veðri um Ísafjarðardjúpið. Fundum fuglinn frekar seint en hann var mjög dreifður þar til rétti bletturinn fannst. Við veiddum 90 fugla sem var samblanda af langvíu, álku, lunda og teistu. Vestfirðingar hafa veitt ágætlega af svartfugli í og við Ísafjarðardjúp sl vikurnar en veiðitímabili á svartfugli líkur 10. maí nk.

Kveðja

Róbert

Vetrarríki á Vestfjörðum

Bloggfærslum mínum hefur fækkað verulega eins og lesendur hafa orðið varir við en þó get ég sagt Sumard 30það að ég er kominn vestur í Súgandafjörð til starfa hjá Fisherman sem sjóstangaveiðileiðsögumaður og reikna ég með að ég verði hér fram í fyrstu viku í ágúst. Til stóð að ég færi vestur í byrjun júní og starfaði út júlí en þetta breyttist um páskana. Ég hef fengið leigt fallegt einbýlishús í hjarta bæjarins og veit að hér mun mér líða vel í allt sumar. Undanfarna daga hef ég starfað með Guðmundi Svavarssyni við viðhald og undirbúning komandi vertíðar sem hefst um miðjan maímánuð. Framundan er sjósetning tæplega 20 báta en þrír eru komnir á flot. Flotinn okkar hefur að geyma 22 Seiglu hraðbáta sem brúkaðir eru sem sjóstangaveiðibátar fyrir erlenda sem innlenda veiðimenn.

Á Sumardaginn fyrsta snjóaði mikið hér vestra og einnig í dag. Hér er talsverður snjór og Bjarni á gröfunni er búinn að vera að moka í allan dag og varla haft undan. Heimamenn kippa sér svo sem ekki mikið upp við þótt snjói í apríl. Sumarið kemur yfirleitt í júní hér í Súgandafirði þótt fyrsti dagur sumars sé á dagatalinu svona snemma. Mannlífið hér er í föstum skorðum og atvinnulífið er traust að venju.

Set hér á bloggið fleiri færslur á næstu vikum og mánuðum ásamt ljósmyndum en bendi á Romarstigur 1www.sudureyri.blog.is þar sem fréttir frá mannlífi og atvinnu vega hæst.

Gleðilegt sumar

Róbert Schmidt
S: 8404022
robert@skopmyndir.com

Púlara-partý á Kjalarnesinu

Reynir bróðir bauð til Liverpool-veislu sl laugardag á Kjalarnesinu þar sem hann og Inga hafa búið í 1allmörg ár. Ég og Arnór sonur minn mættum eldsprækir ásamt vini mínum Sigurþóri Ómarssyni og einnig mættu þeir pabbi, Rikki bróðir og Gústi bróðir. Leikurinn var hinn skemmtilegasti áhorfs og 4-5 sláarskot í fyrrihálfleik sagði okkur að það hlyti að detta inn mark hjá okkar mönnum rétt fyrir leikslok sem varð raunin. Liverpool sigraði Fulham 1-0 og á efri hæðinni voru gargandi Smittarar sem dönsuðu stríðdans og fögnuðu ákaft sigurmarkinu.

Svo var boðið uppá glæsilega grillveislu þar sem Reynir bróðir sýndi listir sínar við grillið. Inga bakaði síðan franska súkkulaðiköku sem smakkaðist hrikalega vel. Ég kom með hertan steinbít í púkkið og Sissó reyktan rauðmaga frá Súganda. Síðan var farið í heita pottinn og skálað fyrir góðum sigri okkar manna. Frábær og skemmtilegur dagur á Kjalarnesinu sem vonandi verður endurtekin.

Læt hér fylgja eina góða ljósmynd sem Margrét Silfa Schmidt frænka mín (dóttir Reynis og Ingu) tók af okkur Púlurunum eftir leikinn. Glögglega má sjá sigurvímuna á köppunum.

Fleiri myndir eru að finna í myndaalbúminu á forsíðunni.

Kveðja

Róbert

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband