Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Valdatafl Frjálslyndaflokksins

Alveg er það makalaust með þessa stjórnmálaflokka. Þeir geta aldrei starfað í friði og án valdataflsmynd_0237267 ýmissa aðila sem þjakaðir eru af minnimáttarkennd. Jón Magnússon (Silfurrefurinn eða Matlock) hefur snúið fast uppá vinstri handlegg togaraskipstjórans Guðjóns A. sem á að heita formaður Frjálslyndaflokksins. Fantabragðið dugði til að koma Kidda Sleggju í skammarkrókinn enn eina ferðina og nú blasir við að Kiddi reimi á sig gaddaskóna, fari í regngallann og taki sér stöðu á ráslínunni, tilbúinn til að taka sprettinn yfir í næsta flokk. Kiddi talar alvöru vestfirsku eins og allir vita og ef hann er á annarri skoðun og flokksbræður sínir, þá hikar hann ekki við að þruma yfir lýðnum. Kannski er það hans helsti kostur og jafnframt hans helsti galli? Mér finnst Kiddi fínn og styð kallinn í þessum leiðindum.

Ég kaus Frjálslyndaflokkinn þegar hann var ferskur og kom sem kröftugt mótspil í íslensk stjórnmál ákristinn-h-gunnarsson sínum tíma. Síðan þá hefur vandræðagangurinn í flokknum verið í meira lagi, nenni ekki einu sinni að rifja upp þá raunarsögu. En ég hef misst trúna á flokkinn og sérstaklega forustuna og það valdatafl sem sífellt er í gangi í brúnni hjá Adda Kitta Gau. Hann siglir nú alltaf undan vindi og tekur lensið þegar pusar á móti. Ólíkt þessum harðnagla hafsins sem áður fyrr var þekktur fyrir seiglu og útsjónarsemi. Nú er hann bara húðlatur útselur sem nennir ekki einu sinni að standa á sinni eigin sannfæringu og þá er nú fokið í flest.

Frjálslyndiflokkurinn er, að mínu mati, loftlaus físibelgur með of marga trilluskipstjóra í stað eins togaraskipstjóra. Samstaða Frjálslyndaflokksins líkist einna helst á mink í hænsnakofa. Flokkurinn nær sér aldrei aftur á strik eftir það sem á undan er gengið. Trúverðugleikinn er horfinn út í hafsauga þar sem múkkarnir rífa í sig slátrið. Tími flokksins er á enda og ég mun ekki framar leggja honum lið í framtíðinni, það er nokkuð ljóst.

Róbert

 

 

 


Rjúpnaveiðar í nóvember

Það var eins og ég bjóst við, ákveðið hefur verið að leyfa rjúpnaveiðar í haust með sama sniði og í Rjupurfyrra enda hafa talningar sýnt fram á aukningu stofnsins. Það hlakkar mikið til í mér að komast til fjalla á rjúpnaveiðar í nóvember. Arnór sonur minn fær þá að arka með og þá er að sjá hvort þolið og útsjónarsemin búi í honum. Ég hef nú sterkan grun um að svo sé enda hefur hann gott útsýni úr tæplega tveimur metrum Wink  

Þótt gæsaveiðar séu skemmtilegar, þá eru rjúpnaveiðar allt öðruvísi. Miklu meiri hreyfing, mikil líkamleg áreynsla og svo að geta verið hátt upp til fjalla að vetrarlagi einn með sjálfum sér í leit að jólamatnum.

Ps. myndina tók ég um sl helgi í Skagafirði þegar ég var að koma heim af gæsaveiðum. Þá blasti við mér rjúpnahópur við kofann sem ég gisti í við Bakkaflöt. Greinilega orðnar nokkuð hvítar að sjá.

Róbert

Gæsaveiðar næstu daga

Fer í dag með félaga minn á gæsaveiðar í Hrútafjörð til morguns og svo fer ég í Skagafjörðinn á Robbi og Maggiföstudaginn og gæsast þar um helgina með nokkrum veiðimönnum. Þetta haust er búið að vera með ólíkindum furðulegt. Alltof heitt og fáar gæsir á túnum. En það snjóaði í fjöll um síðustu helgi og þetta hlýtur að fara að skella á með hausthreti góðu. Bíð spenntur eftir frostinu og snjónum. Læt hér fylgja með eina mynd af mér og Magnúsi Hinrikssyni vini mínum þegar við náðum 26 gæsum um daginn.

Róbert

Mikil eftirsjá af Brúarskála

Þegar ég sá að verið var að rífa Brúarskála fyrr í haust, þá fékk ég verk í hjartað mitt og varð dapurBruarskalinn um stund. Brúarskálinn hefur staðið af sér margan storminn í gegnum árin og þjónustað svanga ferðalanga með sinni persónulegu og góðu þjónustu. Það er því mikil eftirsjá af Brúarskálanum. Þarna kom maður við á haustin þegar gæsaveiðin var byrjuð, tók olíu og pantaði lambakótelettur og alvöru íslenska kjötsúpu. Starfsfólkið kom úr sveitinni og heilsaði alltaf með alúð og brosi. Maður stóð stundum lengi fyrir framan stóra landakortið og rýndi í örnefnin og staðina þarna í kring. Það var alltaf gott að koma í Brúarskálann því mér fannst þjónustan þar betri og verðið betra en í Staðarskála. Sá skáli hefur líka þjónað Íslendingum frá því 1960 en hefur fengið á sig "okurbúllu-nafngift" margra, þannig að ég sé ekkert eftir Staðarskálanum.

Nýr og nútímalegur Staðarskáli hefur nú risið miðja vegu í botni Hrútafjarðar og verður opnaður í næstu viku. Vissulega mun ég versla þar (og get ekki annað) en ég vona svo heitt og innilega að eitthvað af íbúum Hrútafjarðar og nágrennis fái störf þar til að skapa gott andrúmsloft á staðnum og hlýlegt viðmót. Það hefði verið snilldarhugmynd N1's að setja a.m.k. einn hlut frá Brúarskála og Staðarskála í nýja skálann sem virðingu við þessar byggingar sem fólkið í landinu hélt uppi í tugi ára. En eflaust verður þetta allt saman eins og úr Ikea-bæklingi, allt sterilæsað og ópersónulegt. En ég reikna nú með að þarna verði mikið stoppað og ég óttast að skálinn sé of lítill til að þjónusta alla þessa ferðalanga. Maður er stundum svartsýnn þegar maður er dapur en við skulum vona að maður jafni sig á þeirri óþægilegu staðreynd að Brúarskáli sé nú horfinn úr Hrútafirði.

Myndina af Brúarskálanum tók Guðmundur Albertsson.

Kveðja

Róbert 

Fjör í réttunum í Hrútafirði

Ég ákvað að skella mér í réttir á Hvalsá um helgina þar sem Hrútfirðingar halda í hefðina og smala fé af fjalli og niður í nýja rétt sem var endur-smíðuð í fyrra. Veðrið var mjög leiðinlegt, suðaustan 37rigning og rok með hagléljum í bland og greina mátti snjó í efstu fjallstoppum. Það var því erfitt hlutskipti gangnamanna á fjalli að reka féð í slíku veðri. En þeir voru vel búnir og fóru ýmist á hestum, fjórhjólum og á tveimur jafnfljótum rólega en örugglega yfir. Mikill mannfjöldi beið við réttina eftir gangnamönnum og fénu sem skilaði sér á endanum niður í hólfið. Í réttarkofanum voru borðin hlaðin kökum og kræsingum sem konurnar höfðu bakað í tilefni dagsins. Það voru þreyttir og blautir smalamenn sem settust við borðin og hlóðu í sig næringu og heitt kaffi eftir amstur dagsins. 78

Eftir kaffið var farið út í réttina og dregið í hólfin. Börnin hlupu þar um og kepptust við að draga. Þarna heilsuðust margir sem rifjuðu upp gömul kynni. Ef veðrið hefði ekki verið svona blautt, þá hefði stemningin verið skemmtilegri en það má alltaf búast við suðaustan leiðindum á þessum árstíma. Ég setti 90 myndir í sérstakt myndaalbúm merkt Hvalsárréttir 2008 í myndasafninu á forsíðunni. Njótið vel Wink

Efsta mynd: Hannes Hilmarsson 68bóndi á Kolbeinsá heilsar skólabróður sínum frá Reykjum, Magnúsi Hinrikssyni.
Miðjumynd: Berglind dóttir mín með lamb í Hvalsárrétt.
Neðsta mynd: Séð yfir Hvalsárréttina þar sem fénu er smalað inn.

Kveðja

Róbert


Sætur sigur á United

Reynir bróðir bauð okkur feðgum í Púlarapartý sl laugardag en þá áttust við erkifjendurnir Liverpool Pulararog Manchester United á Anfield. Andrés bróðir mætti líka á Kjalarnesið íklæddur réttum búningi enda eru allir Smittararnir Liverpool-fan. Ekki byrjaði leikurinn vel því United skoraði fyrsta markið og það var bölvað vinstri hægri. En með jöfnunarmarkinu tókum við gleðina á ný. Babbel skoraði svo úrslitamarkið fyrir Liverpool og innsiglaði kærkominn sigur á United og nú erum við efstir í deildinni við hlið Chealsea.

Reynir grillaði síðan hamborgara á línuna í bílskúrnum og það var hraustlega tekið til matar. Við höfum lengi vel verið á leið í Liverpool-ferð við bræðurnir og feðgar og vonandi rætist úr þeirri ósk í vetur eða eftir áramótin. Hver veit!

Á myndinni eru f.v. Reynir bróðir, Arnór sonur minn, ég sjálfur og Andrés bróðir og Róbert jr sonur minn liggur á okkur. Myndina tók frænka mín Margrét Silfa Schmidt.

Kveðja

Róbert


Endalaus veiði

Síðustu vikur hafa verið nokkuð viðburðaríkar í veiðinni en nú er veiðitímabilið hafið á önd, skarfi og 13 fuglarsvartfugli samhliða gæsinni. Skrapp um miðja síðustu viku í Hrútafjörð og hafði 13 gæsir og tók 10 stokkendur á heimleiðinni. Nú um helgina fór ég á Mýrarnar með Ödda vini mínum á andaveiðar. Gistum í góðum veiðikofa sem Öddi á skammt frá veiðilendum mínum. Grilluðum þar hrefnukjöt og höfðum það notalegt. Við veiddum við 11 endur og 2 grágæsir ásamt 6 urriðum úr Brókarvatni. Unnsteinn kíkti í grill á laugardagskvöldið og þá voru sagðar margar skemmtilegar sögur, lognar og ekki lognar. Siggi Konn og Sigþór Braga komu í heimsókn á laugardeginum, svona óvænt, en þeir fengu höfðinglegar móttökur því Öddi eldaði fyrir okkur egg, beikon og pulsur á pönnu. Tíkin hans Ödda, hún Nikkí, var í sinni fyrstu veiðiferð en Nikkí er mjög efnilegur hundur afFlokkur gaesa Vorsthe kyni og er efnilegust unghunda í þeirri deild. Frábær hundur og dugleg í veiðinni þótt ekki nema 1,5 árs gömul.

Læt hér fylgja með nokkrar myndir frá liðinni viku. Meira Nikkí sækir önd 3Með veiði helgarinnarsíðar Wink

Róbert

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband