8.8.2008 | 20:21
Góđur dagur ađ baki
Vaknađi kl 06.30 í morgun og dreif mig niđur á höfn í ţessu fína veđri. Hitti Svíana í bátunum sem voru klárir í slaginn. Svo kom ónefndur heimamađur vel viđ skál á flotbryggjuna og bađ mig um ađ redda sér nokkrum bjórum ţví hann hafđi eignast stúlkubarn kvöldiđ áđur og konan sín vćri á sjúkrahúsinu. Dálítiđ skondiđ svona í morgunsáriđ en ég bjargađi nýkrýnda pabbanum um nokkra öllara svo ég losnađi viđ hann. Sá fór sáttur međ bjórinn heim. En áfram leiđ morguninn og ég brunađi út međ feđgum sem heita Klaus og Johann. Viđ fórum vítt og breitt um miđin en lítiđ var af vćnum ţorski ţrátt fyrir allt sem á undan er gengiđ.
Undir hádegi rambađi ég loksins á góđan blett og dró 15 kg ţorsk sem tók vel í hendurnar. Feđgarnir fengu líka fína ţorska eđa frá 10-12 kg fiska. Ţarna vorum viđ í rúma tvo tíma og fengum 15 ţorska á bilinu 10-15 kg og voru ţeir mjög sáttir viđ aflann enda sá besti sl ţrjá daga af sjö hópum á Suđureyri. Veđur var ásćttanlegt ţrátt fyrir smá kaldaskít síđdegis. Og ţađ er alltaf jafnfallegt ađ sigla inn lygnan Súgandafjörđinn í lok dagsins. Fékk mér einn ískaldann bjór ţegar heim var komiđ og í gríni skálađi ég út í loftiđ fyrir litlu dömunni sem fćddist kvöldiđ áđur og líklega vćri pabbinn nokkuđ timbrađur í dag en ţađ er allt önnur Ella.
Lćt hér fylgja ţrjár myndir frá deginum í dag.
Kveđja
Róbert
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.