Leita í fréttum mbl.is

Boltar og brotnir kertastjakar

IMG_6174Eins og alltaf,  þá eru boð og bönn á öllum heimilum. Það má t.d. ekki sparka bolta í stofunni og passa þarf sérstaklega að kerti séu ekki í skotlínunni. Ég er margbúinn að þruma þessu yfir strákana mína þegar þeir eru í boltaleik í íbúðinni. En eldhúsið er eiginlega utan þessara marka ef svo má að orði komast. Þar förum við feðgarnir oft í leikinn “Grísinn í miðjunni” Þá er einn í miðjunni og reynir að stöðva bolta sem hinir tveir reyna að senda á milli sín. Nú, sá sem klikkar, fer í miðjuna að sjálfsögðu. Gott og vel. Eldhúsklukkan hefur enn ekki brotnað né eldhúsglugginn eða annað sem brothætt telst þar inni, þrátt fyrir langan boltaferil okkar feðga þar inni.

Í gærdag var  von á gestum í matarboð. Mamma og Andrés, Gústi bróðir minn og Berglind dóttir mín voru á leiðinni. Synirnir, Arnór 16 ára og Róbert jr 8 ára, voru í eldhúsinu í boltaleik og ég lá í sófanum að horfa á eitthvað skemmtilegt í sjónvarpinu. Sá yngri kemur síðan hlaupandi til mín og fer eitthvað að þvælast fyrir sjónvarpinu. Stríðir pabba sínum dálítið og ég gríp lítinn svampbolta og þykist henda honum í þann stutta, sem þá stekkur af stað inn ganginn. Við það tekur sig upp gamalt glott á mínum og ég læt svampboltann vaða á eftir þeim litla. En þegar boltinn er hálfnaður í boga áleiðis inn ganginn sé ég að búið var að tendra kerti í stórum glerkertastjökum sem höfðu stóran belg og voru jólagjöf til konu minnar frá bróðir hennar forðum daga. Kertastjakarnir voru þrír og stóðu á kommóðunni við gangvegginn. Ég greip fyrir andlit mitt og um leið hafnaði svampboltinn beint í einum gler kertastjakanum sem féll síðan á einn til viðbótar og báðir flugu þeir á parketið með þvílíkum brothljóðum svo glerbrotin spýttust í allar áttir. Kertavax útum allt og svo kom stutt og afgerandi þögn. Það þarf ekki að segja mikið um það hver var hundskammaður fyrir þetta. Það mátti líka sjá glott í augum sona minna eftir á þar sem þeir sátu grafkyrrir, alsaklausir englarnir. Gestirnir hringdu dyrabjöllunni og mamma sagði um leið og hún sá mig: “Hva, minn bara að sópa og allt. Voðalega ertu myndarlegur.”

Já, stundum  breytist maður í barn og stundum er ansi grunnt á prakkaranum í manni eins og dæmin sanna. Ég var tekinn á teppið fyrir þessa vanhugsuðu leikfléttu sem verður varla endurtekin í bráð. Og núna heyrist frá húsfreyjunni úr eldhúsinu: Strákar og þú Róbert líka, það er bannað að vera með bolta í stofunni. Er það SKILIÐ?

Ps. myndin sýnir þennan eina sem eftir er heill. Annar er liggjandi og brotin í tvennt og sá þriðji fór í frumeindir.

Góðar stundir   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þetta getur gerst. Ég er til dæmis alltaf að gala á mínu heimili " hættiði áður en þetta endar með ósköpum". Ég hlýt að vera skyggn því oftar en ekki hef ég rétt fyrir mér

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 17:36

2 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Hélt að þú værir betri skytta en svo að hitta vitlausa bráð .

Kveðja að vestan.

Ingólfur H Þorleifsson, 30.3.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband