Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
29.10.2008 | 15:53
Rjúpur handsamaðar í svefni
Framundan er fyrsti veiðidagur á rjúpu þ.e. á laugardaginn 1. nóvember. Á föstudeginum rúlla ég vestur í Grundarfjörð og pikka upp vin minn og veiðifélaga Unnstein Guðmundsson og síðan verður ekið áfram á Vestfirðina. Til stendur að eyða þar níu dögum í beit ef veðurguðirnir leyfa. Af þessum níu dögum eru sex veiðidagar og ef allt gengur eftir, þá eru líkurnar meiri að við komum með rjúpur heim en ekki. Ætlunin er að heimsækja systur mína og hennar fjölskyldu í Bolungarvík, einnig frændfólk á Suðureyri og að sjálfsögðu heimafólkið þar líka.
Ný og öflug vetrardekk eru nú komin undir jeppann, negld í bak og fyrir og grófmunstruð. Ég ætti að vera þokkalega undirbúinn fyrir komandi vetur þannig dekkjaður. Fyllti á rúðupissið, ísvarann og olíuna, skóflan og spottinn í skottinu og allt klárt fyrir komandi veiðiferðalag. Tilhlökkunin er gríðarlega mikil en svo hverfur hún eftir erfiði fyrsta veiðidagsins þegar maður vaknar upp morguninn eftir með harðsperrur og stirðleika, með hælsæri og rautt nef. En það er svo merkilegt þrátt fyrir það erfiði sem fylgir því að príla fjöllin í misjöfnu veðri, að þegar heim er komið, þá fer manni að hlakka strax til næsta dags.
Það er ólýsanleg tilfinning að standa efst á einhverju felli með byssuna á öxlinni og virða fyrir sér landslagið og anda að sér hreinu fjallalofti. Lyngbrekkur, snjóföl, steinar, skorningar, lækir og gil, allt þetta og meira til verður á vegi manns í leit að rjúpunum. Margar sleppa með skrekkinn en sumar enda í rjúpnavestinu og breytast í jólamat.
Vonandi mun allt ganga að óskum í þessari ferð og að aflabrögðin verði ásættanleg. Meira um það síðar.
Róbert
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2008 | 14:36
Ný síða www.sudureyri.blog.is
Kveðja
Róbert
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.10.2008 | 10:22
Sóley Helga á barnið að heita
Á sama tíma og uppáhaldsliðið mitt í ensku deildinni, Liverpool, mætti Chelsea í mikilli viðureign í gærdag ætlaði ég að mæta í skírnarveislu til Ingu og Nonna í Kópavogi kl 13.00. Að sjálfsögðu vildi ég ekki missa af skírninni og leiknum en tók fyrri hálfleikinn í skírnina, myndaði í gríð og erg og fékk mér kökur að lokinni athöfn alveg slakur. Svo laumaðist ég út í bíl og brunaði heim og kveikti á sjónvarpinu og sá seinni hálfleikinn. Var reyndar búinn að "semja" við Ingveldi um að hverfa um stundar sakir úr veislunni sem var ekkert mál enda er ég ekki þessi Liverpool-aðdáandi dauðans venjulega nema núna langaði mig til að sjá amk brot úr leiknum. Úrslit leiksins voru jákvæð, Liverpool sigraði 4 ára og 8 mánaða sigurgöngu Chelsea á heimavelli með einu marki gegn engu og braut þar einnig 84 leikja samfellda sigurgöngu Chelsea sem er frábært knattspyrnulið. Mitt lið trónir nú efst í deildinni og ég er ánægður með það.
En litla sæta "frænka" mín fékk mjög fallegt nafn: Sóley Helga (Jónsdóttir). Ég læt hér fylgja nokkrar myndir af litlu prinsessunni sem ég tók í skírninni. Hún var mjög vær allan tímann, svaf að mestu eða hjalaði við gestina. Veislan var fín og tæplega 40 gestir mættu til að samgleðjast prinsessunni á þessum annars fína degi.
Fleiri myndir má sjá í myndasafninu á síðunni eða smellið á þennan tengil:
http://schmidt.blog.is/album/skirn_soleyju_helgu_okt_2008/
Kveðja
Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.10.2008 | 10:55
Erfitt að byrja í ræktinni
Síðan eru liðin 8-9 ár og ég hef alltaf verið á leiðinni í ræktina á ný en hef ekki haft tíma eða verið of latur til að rísa á fætur og setja græjurnar í íþróttatöskuna. Samt er ég sprækur og hleyp um dali og fjöll eins og fjallageit. En ég veit og finn að árin líða yfir og maður verður stirðari og þolið er ekki endalaust þó svo maður geti hlaupið nokkrar rjúpur uppi einu sinni að vetri. Ég ákvað því að reima á mig hlaupaskóna um daginn og skokkaði hér sæmilegan hring í Kópavogi og kom heim dauðþreyttur eftir 10 mín. Þetta var mikið afrek að mér fannst. Hljóp reyndar hressilega, þoli ekki hlaupara sem þykjast hlaupa en ganga svo alla leiðina. Og svo kom snjórinn og ég nennti ekki út að hlaupa í þessu skítaveðri. Fékk vottorð uppá sófalegu eins og í denn. Ástæðan fyrir því, að nú vill minn fara að hreyfa sig, er sú að í næstu viku hefst rjúpnaveiðitímabilið og ég veit að það er ekkert grín að klöngrast upp snarbrött fjöllin hálf þollaus og stirður. Hef því ákveðið að reyna að hlaupa amk daglega 1-2 hringi til að ná mér í smá form. Svo held ég að tími sé til kominn að skella sér í Sporthúsið sem er í 5 mínútna göngufæri frá heimili mínu.
Já, maður er að eldast, kominn með lesgleraugu, orðinn stirður, þolið hefur minnkað, yfirvegunin er meiri, hættur á djamminu (ekkert farið í allt haust) og börnin gera grín að manni. En samt er gott að vera til og ekki sakar að gera smá grín af sjálfum sér af og til.
Ég er ágætlega sáttur en skal ná mér í form fyrir rjúpuna!!!
Efri myndina tók Gísli Egill Hrafnsson af okkur Bubba Morthens fyrir mörgum árum í Dölunum, skömmu áður en Bubbi náði augnsambandi við rjúpu og frelsaðist, seldi byssurnar og hætti veiðum.
Neðri myndina tók Dúi Landmark á Snæffelsnesinu á síðasta rjúpnaveiðitímabili í grenjandi rigningu en veiðin var ágæt.
Kveðja
Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.10.2008 | 17:35
Gæsaleysi og skírnarveisla framundan
Það er kærkomið að hvíla sig eina og eina helgi. Haustið hefur verið erilsamt og mikil ferðalög að baki og ófáar gæsir skotnar. Ég mun því horfa á Liverpool og Chelsea leika á laugardaginn og skelli mér í skírnarveislu á sunnudaginn. Læt hér fylgja mynd af litlu drottningunni sem á að skíra en hún er dóttir hennar Ingveldar (systir Sæju) og Nonna í Kópavogi. Ég hélt á henni um daginn og hjalaði við hana þangað til hún sofnaði í fanginu mínu. Sérstök og þægileg tilfinning að halda á ungabarni og svæfa það í kyrrð og ró. Gaman að þessu.
Myndin er af þeim frænkum Sæju og óskýrði Jónsdóttur sem er 2ja mánaða gömul.
Kveðja
Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.10.2008 | 12:50
Skopmyndir á kreppukjörum
Allar nánari uppl gefur undirritaður í síma 8404022
Kveðja
Róbert Schmidt
robert@skopmyndir.com
www.skopmyndir.com
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 11:20
Kreppu-krónan
Ps. Sá ánægjulegi áfangi gekk eftir í dag þegar ákveðið var að skeyta ættarnafninu mínu við þann stutta sem heitir núna því skemmtilega nafni: Guðmundur Róbert Schmidt en mitt nafn er Róbert Guðmundur Schmidt. Þá er bara að koma Arnóri af stað með ættarnafnið en hann er byrjaður að skrifa sig sem Arnór Schmidt. Það er erfitt að lýsa ánægju minni yfir þessu.
Kveðja
Róbert
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2008 | 13:47
Íslenskur fjallarefur með beikoni, sveppum og púrtvíns-rjómasósu
"En ef ég mætti ráðleggja þér Nonni minn, þá myndi ég flá refinn og tálga allt kjöt af honum á pönnu, krydda með salti og pipar og brúna vel í smjöri. Síðan setja sveppi útá ásamt beikonbitum og papriku. Síðan pela af rjóma og láta þetta krauma í smá stund. Og ekki væri verra að setja 1-2 tappa af góðu púrtvíni útá pönnuna í upphafi steikingar. Prófaðu þetta og láttu mig vita hvernig til tekst," sagði ég og sagðist reyndar aldrei verið svo svangur að vilja borða íslenskan villtan fjallaref amk ekki enn sem komið er. En hver veit hvað verður í þessari kreppu? Íslenski refurinn lifir reyndar á góðu fæði.
Kveðja
Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2008 | 13:19
Í snjónum í Skagafirði
Fór norður í Skagafjörð um miðja sl viku til að veiða fleiri gæsir og undirbúa komu veiðimanna á gæs á Vindheima. Ferðin byrjaði ekki vel því Hvalfjarðargöngin voru lokuð nóttina þegar ég rúllaði norður og ég varð því að aka Hvalfjörðinn. Náði þó á svæðið á tilsettum tíma og hafði 16 grágæsir eftir morguninn. Næstu dagar fram að helgi fóru að rembast við að ná fleiri gæsum en það miðaði frekar rólega. En ég var ágætlega sáttur við aflann sem kominn var. Veðurspáin var ekki sérlega góð, NA-rok með snjókomu. Á laugardagsmorguninn var allt hvítt og kalt með hæfilegu roki. Sunnudagurinn var lognsæll og úrkomulítill. Við lágum svo að segja hreyfingarlausir í 6-7 tíma á akrinum í skítafrosti en veiðin var dræm. Gæsirnar greinilega byrjaðar á að færa sig yfir landið á SA-landið áður en hún hverfur yfir hafið til Bretlandseyja til vetursetu.
Á laugardagskvöldið komu Maggi Hinriks og Steinar Péturs í kvöldverð til okkar Sæju í sumarbústaðinn í Varmahlíð ásamt konum sínum, þeim Sonju og Effu. Ég grillaði kjúklingaspjót, höfrungaspjót og gæsaspjót. Marineraði gæsina í hlynsírópi, títuberjasultu og Baily's sem smakkaðist vel. Þar ræddum við félagarnir um fyrirhugaða kajakferð um A-Grænland 2009. Maggi kom með reyktan lunda í forrétt og ég setti heitreykta gæs með á diskinn enda hvortveggja úr Skagafirði.
Kannski að maður reyti eitthvað af þessum spikfeitu grágæsum sem ég veiddi um helgina því feitari geta þær nú varla verið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2008 | 17:31
Hrikaleg jeppatröll í Fífunni
Fyrir utan Fífuna eru svo nokkrir björgunarsveitajeppar og sérlega falleg og sérstök mótorhjól. Garmin er með flottan bás á sýningunni þar sem er að finna allt það besta í staðsetningartækjum, hvort sem er í bíla, báta eða fyrir göngugarpinn. Held að ég sé búinn að finna mér jólagjöfina í ár Ekki má gleyma aðalbílnum á sýningunni sem er Læðan hans Ólafs Ragnars úr Dagvaktinni. Myndin af henni er hér til hliðar.
Hvet alla sem geta að fara í Fífuna og skoða jeppaúrvalið hjá 4X4 klúbbnum. Það kostar 1000 kr inn en svo bjóða þeir uppá 1500 kr helgarpassa en frítt er fyrir börnin. Eftir sýninguna fórum við í fótbolta út í góða veðrið á meðan Sæunn og Þórunn Hanna voru á Villa Vill tónleikunum.
Róbert
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)