15.9.2008 | 12:50
Sætur sigur á United
Reynir bróðir bauð okkur feðgum í Púlarapartý sl laugardag en þá áttust við erkifjendurnir Liverpool og Manchester United á Anfield. Andrés bróðir mætti líka á Kjalarnesið íklæddur réttum búningi enda eru allir Smittararnir Liverpool-fan. Ekki byrjaði leikurinn vel því United skoraði fyrsta markið og það var bölvað vinstri hægri. En með jöfnunarmarkinu tókum við gleðina á ný. Babbel skoraði svo úrslitamarkið fyrir Liverpool og innsiglaði kærkominn sigur á United og nú erum við efstir í deildinni við hlið Chealsea.
Reynir grillaði síðan hamborgara á línuna í bílskúrnum og það var hraustlega tekið til matar. Við höfum lengi vel verið á leið í Liverpool-ferð við bræðurnir og feðgar og vonandi rætist úr þeirri ósk í vetur eða eftir áramótin. Hver veit!
Á myndinni eru f.v. Reynir bróðir, Arnór sonur minn, ég sjálfur og Andrés bróðir og Róbert jr sonur minn liggur á okkur. Myndina tók frænka mín Margrét Silfa Schmidt.
Kveðja
Róbert
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- Þetta mætti vera skilvirkara
- Vill fjölga myndum frá Íslandi á Wikipedia
- Vasaþjófnaður minnkað við tilkomu varðturna
- Eftirlýstur maður grunaður um vændiskaup
- Þúsundir flykktust í Gamla bíó
- Þetta er algjörlega blaut tuska í andlitið
- Ekki endilega spurt um heiðarleika
- Leyfi tilfinningum að birtast
- Launamunur of lítill í landinu
- 29% landsmanna tekur lýsi daglega
Viðskipti
- Hið ljúfa líf: Nokkrar yndislegar klukkustundir í Kaíró
- Tækifæri í Færeyjum
- Verðlagseftirlitið lífgað við?
- Regluverkið kæfir frumkvæði
- Svipmynd: Krefjandi verkefni er besti skólinn
- Eftirspurnin fór fram úr væntingum
- Abler þjónustar bresk risafélög
- Hagar horfi til innri og ytri vaxtar á næstunni
- Deilan er dýr
- Donald Trump mistókst að hagræða í ríkisrekstri
Athugasemdir
You´l never walk alone....með alla Schmidtarana þér við hlið
Sigrún Jónsdóttir, 15.9.2008 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.