20.6.2008 | 11:51
Veiðiferð í Staðará á Snæfellsnesi
Fyrir nokkru skrapp ég í bleikjuveiði með bræðrunum Sigurþóri og Atla Ómarssonum í Staðará í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Áin er falleg og nokkuð löng en besta veiðin var við ósinn, sérstaklega á háflóði þegar bleikjan kom inn í ána. Ekki voru bleikjurnar stórar sem við veiddum, mest 1/2 til 1 punda fiskar en sérlega ljúffengir í heitreykingapottinn minn. Aflinn var allur flakaður og heitreyktur á föstudagskvöldinu og borinn fram með pönnusteiktum kartöflum og spænsku rauðvíni. 15 bleikjur hurfu ofaní maga svangra veiðimanna og fannst okkur það bara fínt þ.e.a.s. koma fisklausir heim og að hafa étið allan aflann á veiðistaðnum.
Læt hér fylgja með nokkrar myndir úr ferðinni okkar. Stefnt er að fara í sjóbirting í sömu á í haust ef allt gengur upp og síðan strax í opnun á gæs.
Með Vestfjarðarkveðju
Róbert
Læt hér fylgja með nokkrar myndir úr ferðinni okkar. Stefnt er að fara í sjóbirting í sömu á í haust ef allt gengur upp og síðan strax í opnun á gæs.
Með Vestfjarðarkveðju
Róbert
Athugasemdir
skemmtilegar myndir hjá þér, gaman að svona náttúrumyndum.
SM, 21.6.2008 kl. 18:06
Flottar myndir! Og ég fékk vatn í munninn .
Ester Júlía, 23.6.2008 kl. 13:36
Velkomin í bloggvinahópinn !
hlakkat til að fylgjast með veiðimanninum
kær kveðja
Sigga Guðna
Sigríður Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.