28.5.2008 | 20:16
Auðvitað náði hún prófinu stelpan
Það fór eins og ég vissi, Þórunn Hanna náði bílprófinu í dag með stæl. Fékk 10 í einkunn og ég held að það hafi verið eitt atriði sem hún gleymdi en það breytti ekki glæsilegri niðurstöðu hennar. Enn og aftur til hamingju elsku dúllan mín
Og hún var nú ekki lengi að skella sér í bíltúr á nýja bílnum sínum með glóðvolgt ökuleyfið í rassvasanum. Hún sagði mér í gær að bíllinn (Wv) eyddi bara 6 lítrum á hundraði sem er ansi gott.
Bíð spenntur eftir að fá mynd af bílnum hennar.
Kveðja
Róbert
Bíð spenntur eftir að fá mynd af bílnum hennar.
Kveðja
Róbert
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.