Leita í fréttum mbl.is

Hvert fóru vetrarstillurnar?

Andskotans ótíð  er búin að vera frá áramótum. Ég hef beðið klár með hólkinn og veiðigræjurnar nær IMG_1293daglega í þeirri veiku von um að komast á veiðar. Annað hvort er of mikill vindur til að róa á kajak eða of mikill snjór til að komast á andaveiðar. Ég komst í klukkustundaróður í Hrútafirði fyrstu viku í janúar, náði tveimur hávellum og þurfti svo að berjast á móti brimi og roki til að ná landi. Síðan skrapp ég reyndar með Dúa vini mínum á andaveiðar í janúar og náðum við þá 10 fuglum sem er ágætis veiði.


Veiðitímabilið á skarfi  og önd lýkur 15 mars nk, þannig að tíminn styttist verulega og hver fer að verða síðastur að ná sér í þessa góðu steik. Vetrarmánuðirnir; janúar, febrúar og mars eru notaðir í skarfaveiðina en venjulega veiði ég talsvert mikið af þessum skemmtilega fugli og á því nóg út árið. Frábær matur í veislur og sem veiðinesti. Tvímælalaust besti sjófuglinn í matreiðslu, sérstaklega ungur toppskarfur. En vonandi rætist úr tíðarfarinu og vetrarstillurnar líti dagsins ljós svo himinn og haf rennur í eitt.

Yfirleitt hef ég tjaldað  til 2ja nátta í einni ferð yfirveturinn út í lítilli eyju sem er hálfgert sker. Hugsa að Kajak og tjald 500þessi litla eyja sé varla meiri en 70 m að lengd og 30 á breidd. Skarfurinn sækir mikið í hana og fluglínan er sitthvoru megin við eyjuna. Stundum þegar snjór er yfir öllu og frost er úti, þá tjalda ég á “skerinu” og dvel þar í 1-2 daga. Hleð hugann af fersku sjávarlofti og bjartsýni. Tæmi svo í leiðinni út helvítis borgarstressið. Ég hreinlega get ekki beðið eftir að komast vestur/norður að veiða. Ætli ég verði bara ekki að semja við Sigga Storm um að spá logni næstu vikurnar Wink

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég hef ekki enn ná í skarf í ár og það styttist í veiðibann eins og þú bendir á.

Sigurjón Þórðarson, 19.2.2008 kl. 22:55

2 identicon

Sæll Sigurjón,

Já, það styttist í annan endan á veiðitímabilinu. Ég ætla að reyna að ná mér í nokkra skarfa á fimmtudaginn. Þá spáir blíðu í Hrútafirði og við Snæfellsnes. Reikna með að fara á annan hvorn staðinn ef allt gengur eftir.
Kveðja

Róbert

Róbert Schmidt (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband