22.10.2008 | 11:20
Kreppu-krónan
Í gærkveldi þegar yngri sonur minn, Róbert, hafði lokið við að horfa á sjónvarpsfréttirnar settist hann við stofuborðið og fór að teikna. Þessi skemmtilega mynd er mjög táknræn fyrir ástandið á landinu í dag. Merkilegt hvað 9 ára gömul börn geta túlkað vel krepputalið sem glymur í öllum fjölmiðlum og frá fólki almennt.
Ps. Sá ánægjulegi áfangi gekk eftir í dag þegar ákveðið var að skeyta ættarnafninu mínu við þann stutta sem heitir núna því skemmtilega nafni: Guðmundur Róbert Schmidt en mitt nafn er Róbert Guðmundur Schmidt. Þá er bara að koma Arnóri af stað með ættarnafnið en hann er byrjaður að skrifa sig sem Arnór Schmidt. Það er erfitt að lýsa ánægju minni yfir þessu.
Kveðja
Róbert

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.