Leita í fréttum mbl.is

Er Bubbi ekki lengur ríkisbubbi?

Ég verð nú að segja að álit mitt á honum Bubba fer þverrandi með árunum sem líða. Þessi grjótharðiBubbiOgVodafone%2002 farandsöngvari með gítarinn og jónuna í brjóstvasanum barði sér á brjóst hér í denn og stálaði hnífinn á tónleikum um land allt svo undir tók í öllu þjóðfélaginu og þorskarnir brostu. Jú, Bubbi hætti að dópa sem var líklega besta útspila hans um ævina.  Því er ekki að neita að maðurinn er snillingur á tónlistarsviðinu og semur frábær lög og texta. Jú, það var gaman að hlusta á bullið í honum þegar hann var að lýsa boxviðureignum á Sýn "Váááá, hann var rotaður í hringinum" og "svaka bomba, segi og skrifa BOBA. Makalaus froðusnakkur.

Bubbi náði að landa góðum samningum við fyrirtæki og bankastofnanir um fjárhagslega framtíð hans með því að selja afnotarétt afurða sinna og hann keypti sér flottan Range Rover og fékk sér flott sólgleraugu. Gott hjá Bubba að koma sér í öruggt fjárhagslegt skjól til framtíðar. Hann átti það alveg skilið blessaður kallinn. En Bubbi fór að bruðla, byggði sér risastórt hús í sveitinni og gamblaði meðBubbi_HOFSA-2006_031 verðbréf, veiddi lax um allar sveitir fyrir milljónir og gerðist ríkisbubbi um tíma. En svo kom kreppan og Bubbi grætur nú niður á gítarinn og hefur lýst því yfir þjóðina að hann hafi tapað miklum fjármunum líkt og hluthafar bankana hafa gert. Í 100.000 kr frakka stígur hann á stokk og dustar rykið af gamla góða farandgítarnum sínum og efnir til útitónleika til að mótmæla kreppunni. Ja, hérna, þvílíkur tækifærissinni getur maðurinn verið. Nú vill hann fá samúð þjóðarinnar. Hann heldur kannski að fólk sé fífl? Hann er gersamlega kominn í hring og rúmlega það. Nú spyr hann sig allar nætur; kemst ég í 40 daga laxveiði næsta sumar?

Ég hef alltaf litið á Bubba sem snilling á tónlistarsviðinu sem hann er. Ég ætla líka að halda mig við það og hlusta á lögin hans og texta. En ég er gersamlega búinn að fá nóg af bullinu í honum. Ef einhver er Ragnar Reykás, þá er það Bubbi Morthens. Það skilja hann fáir þ.e.a.s. ef þeir þá nenna að reyna að skilja hann. Stígðu nú niður úr fílabeinsturninum Bubbi minn og andaðu rólega. Þú verður aldrei aftur farandsöngvari þjóðarinnar því sá tími er fyrir löngu liðinn.

Róbert

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hefði ekki getað orðað þetta betur

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 14:58

2 Smámynd: Róbert Guðmundur Schmidt

Takk fyrir það Lísa  æi, maður hálf vorkennir sumu fólki hvernig það getur látið. Bubbi kallinn hefur sjaldan verið samkvæmur sjálfum sér.

Róbert Guðmundur Schmidt, 9.10.2008 kl. 15:16

3 identicon

Hehe kallinn beittur eins og kutinn hans Marners .........þetta er svo rétt hjá þér. Bubbi er snillingur með gítarinn, en malið og blaðrið í honum er stundum óendanlega vitlaust.

Over and out Ellert fóstbróðir

Ellert Guðmundsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband