20.2.2008 | 10:13
Bræður berjast
Það er ein saga sem hefur fylgt okkur Reyni bróðir frá unga aldri. Mamma hefur svo oft sagt okkur frá þessari sögu að hún fer nú á milli barnanna okkar og mörgum er skemmt yfir henni. Hún er reyndar ekki löng en dálítið sérstök. Hér á eftir ætla ég að reyna að rifja hana upp.
Ég er fæddur í apríl 1965 en Reynir ári síðar. Líklega hef ég verið 2ja ára gamall þegar komið er við sögu. Vinkonur mömmu, sem kíktu í kaffi, voru sífellt að knúsa litla bróður minn hann Reyni sem lá í rimlarúminu sínu og brosti blítt. Oh, hann er svo sætur og sætur...krúttípúttý....sögðu þær allar í kór. En það fór víst eitthvað í taugarnar á litla sköllótta 2ja ára Róberti stóra bróðir sem fann fyrir afbrýðisemi. Og einn daginn þegar honum var nóg boðið og fannst verulega að sér vegið, sótti litli stubburinn buffhamar í eldhússkúffuna úr hörðum málmi og dró á eftir sér hjólbeinóttur rakleiðis að rimlarúmi litla bróður. Reisti buffhamarinn á loft og ...bang...! Skerandi öskur hristi rimlarúmið og það sást ofaní kok á Reyni þar sem hann orgaði eins og stungin grís. Fjólublátt og ferkantað far mátti sjá í enni Reynis eftir buffhamarinn. Þarna stóð ég eins og mannófreskjan úr Omen og sagði; þú ert ljótur
Veit ekki hvort Reynir sé búinn að fyrirgefa mér þessa tilefnislausu árás úr launsátri í bræðikasti mínu, aðeins 2ja ára. Eða öllum hinum hernaðinum sem ég beitti öllum stundum! En það er af nógu að taka. Við vorum líklega erfiðir drengir heimafyrir á sínum tíma. Ég man eitt sinn eftir atviki þegar ég var að stríða Reyni þegar hann var að naga epli ca 7 ára gamall. Skapið hans brast á endanum. Hann tók stóran bita af eplinu áður en hann lét það vaða í áttina að mér þar sem ég stóð fyrir framan hansahillurnar heima með öllum flug- og skipamódelunum sem ég hafði legið yfir svo vikum skipti. Eplið þaut með ógnarhraða. Höfuð mitt kipptist til hliðar og eplið hafnaði beint í einni hansahillunni svo herskip og orrustuflugvélar tvístruðust um allt herbergi. Þvílíkt tundurskeyti frá litla bróður!
Efri mynd; Reynir er til vinstri á myndinni og ég til hægri. Myndin var tekin á síðasta ári eða rúmum 40 árum eftir buffhamarinn.
Neðri mynd; Reynir tv og ég th. Myndin er tekin 1971 en þá erum við 5 og 6 ára gamlir.
Meira síðar

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.