Leita í fréttum mbl.is

Frábært Góublót súgfirskra karla

Góublót súgfirskra karla var haldið laugardaginn 19. febrúar sl í Félagsheimili Súgfirðinga að7 viðstöddum 165 gestum. Borðhaldið tókst vel að venju og gestir borðuðu úr sínum eigin trogum sem þeir komu með í húsið fyrr um daginn. Skemmtiatriðin voru ríkuleg og vel útfærð. Margir fengu á baukinn, eins og sagt er en skemmtiatriðin eru hálfgert áramótaskaup heimamanna.

Veðrið var með eindæmum gott þessa helgi, stafalogn og úrkomulaust. Að sögn Grétars Schmidt náði hann smá sólargeisla við enda hafnargarðsins á laugardagsmorgninum en9 skammt er þangað til heimamenn fái að njóta sólarinnar sem óðum hækkar sig yfir Spillinn.

Læt hér fylgja fáeinar myndir frá Góublótinu.

Kveðja

Róbert Schmidt

32627522012

 


Bloggfærslur 22. febrúar 2011

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband