Leita í fréttum mbl.is

Frábært þorrablót Súgfirðingafélagsins

Súgfirðingar hafa nú haldið  tvenn þorrablót. Annars vegar fyrir vestan og um sl helgi í Kópavogi en 43það var Súgfirðingafélagið í Reykjavík sem stóð fyrir því. Í stuttu máli heppnaðist blótið frábærlega enda voru 159 manns í mat sem er metþátttaka frá upphafi. Sérstaklega var gaman að sjá allt það unga fólk sem mætti en mikil nauðsyn er að brúa kynslóðarbilið í Súgfirðingafélaginu með nýju og ungu fólki. Félagið er á réttri leið og eflist með hverjum mánuðinum sem líður. Að lokinni formlegri dagsskrá streymdu dansgestir í salinn. En áætlað er að þeir hafi verið rúmlega 30 talsins.

Nokkrir urðu veðurtepptir  fyrir vestan en þó var flogið síðdegis á laugardeginum sem færði okkur 110samt sem áður hressa Súgfirðinga. Þegar ég gekk um salinn og sá öll þessi ungu bros vissi ég að við stjórnarmenn erum á réttri leið með félagið. Þetta er hraustleikamerki sem verður að hlúa að. Stofnaðir verða ungliða-vinnuhópar innan félagsins sem sér um að sameina fjölmarga yngri árganga og koma með nýjar hugmyndir í félagsstarfið.



Læt þetta duga að sinni. Heilsan hefur víst ekki verið uppá marga fiska síðustu daga. Ligg með ristilbólgu heima og bryð verkjalyf.

Efri myndin: Ég með Berglindi dóttur minni.
Neðri myndin: Hallgerður, Inga, Þorgerður og Alda

Róbert

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldóra Hannesdóttir

Flott að vel hafi tekist til, alltaf gott að vera í góðra vina hópi . Vonandi batnar þér sem fyrst, gaman að lesa pistlana þína. Góð kveðja til þín og þinna. ps. mikið svakalega er langt síðan að ég hef séð hana Berglindi, hún var bara pínulítil skotta þegar ég sá hana síðast .

Halldóra Hannesdóttir, 12.2.2008 kl. 22:46

2 identicon

Ég held að ristilbólgurnar stafi af of miklu hagla áti ......allir sundurskotnu sjófuglarnir eru að hefna sín.

Djö ... hefði verið gaman að tjútta (manstu:)) á þorrablóti.

Kv Ellert

Ellert Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband