Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010
22.1.2010 | 19:06
Fékk mér stórskötu á hafnarvigtinni í tilefni Bóndadagsins
Ævar Einars og Valli Hallbjörns voru með opið hús á hafnarvigtinni í dag og buðu uppá saltaða og kæsta stórskötu, kartöflur, flot og hvítlauksolíu í meðlæti í tilefni Bóndadagsins. Ég hef aldrei lært að borða skötu þrátt fyrir margar tilraunir en lét mig hafa það að smakka stórskötuna sem var mjög góð. Skutlaði í mig einum ísköldum bjór með og tók þátt í skemmtilegum umræðum með hressum körlum á vigtinni.
Það er búið að vera bræluskítur alla vikuna og það snjóaði lítillega í dag. Það gaf reyndar á sjó 1-2 daga í vikunni sem flestir smábátar nýttu sér. Lítill sem engin snjór er í þorpinu þrátt fyrir hávetur.
Svo skelli ég mér á handboltaleik á Talisman annað kvöld en þangað mætir 25-30 manna hópur stuðningsmanna landsliðsins reglulega til að fylgjast með gengi liðsins sem verið hefur ansi sérkennilegt sl leiki. Enn er ekkert tap komið en báðir leikirnir á undan hefðu átt að enda með sigri Íslands en svona er handboltinn.
Kveðja
Robbi Schmidt

Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Af mbl.is
Innlent
- 12 gráða frost og tæplega 7 gráða hiti
- Býður Katrín sig fram til forseta?
- Meiri straumur á Suðurland
- Nokkur stór rán eru enn óupplýst
- Undrast meiri gjaldtöku án bættra almenningssamgangna
- Stefnir í góða páskahelgi í Hlíðarfjalli
- Guðni opnaði myndlistarsýningu barna á Ísafirði
- Dregur framboð sitt til forseta til baka
- Innbrot eða þjófnaður í þremur verslunum
- Kerfi heilbrigðiseftirlitsins úrelt
- Slasaðist á vélsleða og gæti hafa lent í snjóflóði
- Hlíta niðurstöðu um hleðsluáskrift
- Sorglegt athæfi sem á ekki að endurtaka sig
- Flutningaskip tók niðri í Fáskrúðsfirði
- Sala á Íslandsbanka geti skilað 100 milljörðum