Leita í fréttum mbl.is

Fékk mér stórskötu á hafnarvigtinni í tilefni Bóndadagsins

Ævar Einars og Valli Hallbjörns voru með opið hús á hafnarvigtinni í dag og buðu uppá saltaða og 4kæsta stórskötu, kartöflur, flot og hvítlauksolíu í meðlæti í tilefni Bóndadagsins. Ég hef aldrei lært að borða skötu þrátt fyrir margar tilraunir en lét mig hafa það að smakka stórskötuna sem var mjög góð. Skutlaði í mig einum ísköldum bjór með og tók þátt í skemmtilegum umræðum með hressum körlum á vigtinni.

Það er búið að vera bræluskítur alla vikuna og það snjóaði lítillega í dag. Það gaf reyndar á sjó 1-2 daga í vikunni sem flestir smábátar nýttu sér. Lítill sem engin snjór er í þorpinu þrátt fyrir hávetur.

Svo skelli ég mér á handboltaleik á Talisman annað kvöld en þangað mætir 25-630 manna hópur stuðningsmanna landsliðsins reglulega til að fylgjast með gengi liðsins sem verið hefur ansi sérkennilegt sl leiki. Enn er ekkert tap komið en báðir leikirnir á undan hefðu átt að enda með sigri Íslands en svona er handboltinn.

Kveðja

Robbi Schmidt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband