Leita í fréttum mbl.is

Teiknibóluhernađur

Ţegar viđ systkinin  hittumst snýst umrćđan ósjálfrátt um prakkarastrik og skemmtilegar sögur frá ţví viđ vorum lítil vestur í Súgandafirđi. Mamma hefur haldiđ sögunum á lofti í áratugi og ţćr hafa fylgt okkur í blíđu og stríđu til dagsins í dag. Á nćstunni mun ég rifja upp ýmis prakkarastrik sem flest skrifast á mig.

Ég var sérstaklega  stríđinn drengur og sá spaugilegu hliđina á mörgu. Meira segja ţegar ađrir fengu teiknibólu í rassinn. Mér ţótti ţetta mjög saklausir hrekkir í ţá daga og furđulegt ađ ég skuli hafa sloppiđ svona vel frá ţeim. Mamma var fljót ađ átta sig á “teiknibólustríđinu” á heimilinu og fjárfesti í klossum sem hún fór sjaldan úr. Enda ekkert skrítiđ ţví stiginn heima var mest notađur í ţennan hernađ. Klossarnir hennar voru ţaktir teiknibólum ţ.e.a.s. sólarnir. Á endanum ţurfti mamma ađ setjast niđur og gefa sér góđan tíma til ađ pikka teiknibólurnar úr. Klossarnir voru orđnir valtir. Aumingja mamma!

Reynir bróđir svaf  vćrt einn morguninn. Hann er ári yngri en ég og var mjög viđkvćmur í nefinu. Fékk blóđnasir viđ minnsta tćkifćri. Mér fannst hann líka vera smá “kisa” í sér og ákvađ ađ skipuleggja lítinn hrekk. Daginn áđur mátađi ég rúmiđ hans, fór frammúr og ćfđi ţetta um stund. Ég vissi nokkurn veginnMamma, Dori og eghvernig hann fćri útúr rúminu sínu og hvar fćturnir myndu snerta gólfiđ. Tveimur teiknibólum var síđan komiđ haganlega fyrir á gólfinu, nákvćmlega ţar sem ég hafđi reiknađ út ađ hann myndi stíga niđur. Nýr dagur rann upp og allir á fćtur. Reynir kúrđi ađeins lengur á koddanum og ég lćddist niđur í morgunmat međ hrekkjalómaglottiđ á andlitinu. Ég man vel hvađ ég átti erfitt međ ađ borđa Cheeriosiđ mitt á neđri hćđinni fyrir hlátri. Hvenćr skyldi öskriđ koma frá erfi hćđinni? Jú, ekki leiđ á löngu ţar til skađrćđis öskur barst um allt húsiđ svo eldhúsklukkan nötrađi og skalf. Ég stökk í stígvélin, snarađi skólatöskunni á bakiđ og rauk út í snjóinn skellihlćjandi. Forđađi mér frá litla bróđur sem kom öskrandi reiđur niđur stigann međ tárin í augunum. Teiknibólurnar voru greinilega rétt stađsettar.

Meira síđar...W00tW00t

 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband