Leita í fréttum mbl.is

Erfitt val fyrir Öskudaginn

Öskudagurinn er runnin upp með tilheyrandi búningaskaki og sælgætisbelti fyrir Gamla Nóa og önnur þekkt lög. Já, öskupokarnir eru á undanhaldi og búningarnir orðnir dálítið ýktir miðað við hér í denn...jájá, ég veit að ég er orðinn gamall. Ég skrapp með son minn, Róbert 8 ára, í stærstu Oskudagur8leikfangaverslun Kópavogs sl. sunnudag. Fólk hljóp á milli búðarrekkana í miklum ham. Hver að verða síðastur til að klófesta öskudagsbúninginn. Við feðgar gengum rólegir að búningarekkanum og þegar hann blasti við, sáum við að þar héngu fáeinar flíkur og nokkur plastsverð. Ég leit á þann stutta sem stóð hreyfingalaus og starði á hálf tómann vegginn. Það glytti í smá örvæntingu í augum hans og svo leit hann upp til pabba síns með sínum hvolpasvip. Ég lagði aðra höndina yfir axlirnar á honum og sagði “Heyrðu kúturinn minn. Það er bara allt uppselt. Hvað gera Danir þá?” Og ekki þurfti ég að bíða lengi eftir svari frá honum –“Ég veit það ekki pabbi. Ég er ekki Dani”

Hagkaup var næsti viðkomustaðurinn. Úrvalið var ágætt. Varúlfar, Bart Simpson, beinagrindur, sjóræningjar, prinsessukjólar og alls kyns hárkollur. Hvað langar þig til að vera kúturinn minn? spurði ég þann stutta –“Hmm, veit ekki. Kannski bara prinsessa.” Prinsessa, hvað meinarðu strákur? Langar þig tilPrinsessaað vera í þessum skærbleika prinsessukjól út í kuldanum og innan um alla strákana? “Já, ég er alveg til í það,” svaraði litli gaurinn og glotti. Ég var ekki alveg viss um hvort hann væri að gera at í gamla manninum. En síðan sá hann svakalega ógeðslega varúlfagrímu sem hann pantaði. Úff, sem betur fer! Ekkert mál, ég skal kaupa þessa grímu,- sagði ég. “Og svo þennan vofubúning,” segir hann aftur. Ekkert mál, vofubúningur og varúlfagríma. Hljómar betur en skærbleiki prinsessukjólinn. Drífum okkur heim kúturinn minn. Málið er leyst.

Þegar við gengum útúr Hagkaupum áleiðis í gegnum Smáralindina spurði litli “varúlfurinn” pabba sinn hvort við gætum ekki kíkt í Leikbæ á efri hæðinni. Jújú, kíkjum þangað, ekkert mál. Og viti menn. Þar sá hann draumabúninginn sinn. Hermannabúning. “Vááá pabbi, sjáðu þennan búning.” Jæja, þar kom að því. Karlagenið hafði yfirhöndina. Áhyggjur mínar um prinsessukjólinn bleika hvarf endanlega inní Hermadurinnmannhafið á göngunum. Hermannabúningurinn var keyptur í snatri og málið afgreitt með brosi. Af einhverjum orsökum á litli haug af leikfangabyssum heima í skáp (veit ekki hvaðan hann hefur þá áráttu) sem klæða búninginn fullkomlega. Með fulla poka af búningum og grímum leiddumst við út í snjóinn og það var létt yfir okkur feðgum. Sérstaklega mér. Eftir kvöldmatinn fórum við svo í koddaslag og það voru sko engir prinsessutaktar í litla kútnum mínum. Ég hló í gegnum koddahöggin frá honum þar sem hann hoppaði uppí rúminu alveg spinni gal úr fjöri. Kannski var hann að hefna sín á mér fyrir að kaupa ekki prinsessukjólinn? Já, Sæll. Ég held nú ekki.

Góðar stundir

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hérna fór sú 4 ára í fagurbláann öskubuskukjól, háhælaða skó, svarta batmanslá og með svarta batmangrímu og sagðist vera batman prinsessa Sú 2 ára fór í bleikan prinsessukjól, harrypotter slá með galdrastaf, en setti í poka ljónahettu, skott og klær og bleikan hatt. Ég væri til í að vera á leikskólanum í dag að fylgjast með þeim.

Þinn hefði verið flottur í prinsessubúningum

Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 09:00

2 identicon

Ég hneppi bara frá neðstu fjórum tölunum á skyrtunni minni og þá er komin BJÖSSI BOLLA.

Björn G (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 10:18

3 identicon

Skil ekki af hverju!!!! Ég byrjaði að raula þekkt Bubba lag meðan ég las þennan skemmtilega pistil! :  Sonur minn er enginn ....., hann er fullkomin eins og Ég!!!

Sigrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband