Leita í fréttum mbl.is

Haustið skall á með snjóhríð

Kæru vinir og vandamenn, þá er maður kominn heim í Kópavoginn eftir veruna fyrir vestan í sumar 700en hún var viðburðarrík og ánægjuleg í alla staði. Ég fór vestur strax eftir páska og vertíðin endaði þar 1. sept sl, þó svo að fáeinir hópar hafi komið til Suðureyrar og Flateyrar fyrstu tvær vikurnar í þeim mánuði. Framkvæmdarstjórn Hvíldarkletts hefur nú færst yfir til Flateyrar en þar stjórnar Jón Svanberg Hjartarson skútunni með sóma. Ég fékk fjölmarga góða gesti vestur í sumar á Skólagötuna og Sæluhelgin var sérlega eftirminnileg. Einnig var yngri sonur minn, hann Róbert jr hjá mér í júní og við feðgar fórum ósjaldan á sjóinn og nutum þess að bralla eitthvað saman.

Síðan skrapp ég í smá sumarleyfi til Spánar með konunni minni og þremur öðrum pörum. Það var Bys 16kærkomið frí en ég er ekki þessi sólarlandatýpa sem nennir að flatmaga allan daginn í sólbaði. Það getur verið ágætt að hvíla sig á sólbekk af og til en til að krydda ferðina, þá hefði ég viljað skoða betur áhugarverða staði, mannlífið og menninguna í bland. Reyndar fórum við í fjallabæinn Bosat sem er í ca 500 m hæð og þaðan uppí þekktan dropasteinshelli sem er í 700 m hæð yfir sjávarmáli. Sú ferð var fræðandi og góð. Einnig skruppum við í "súkkulaðiþorpið" La Villa Josa og kíktum í eina súkkulaðiverksmiðju sem reyndar var ekki sú rétta. Valor er þekktasti súkkulaðiframleiðandi svæðisins en við náðum þó að smakka á góðum súkkulaðidrykk frá þeim áður en haldið var heim.

Það var stutt stopp í Kópavogi eftir Spánarferðina enda var ég fyrir löngu byrjaður að hugsa um L15gæsaveiðar og var ekki lengi að koma veiðibúnaðinum í jeppann og brunaði af stað seinni parts mánudags í sl viku norður í Hrútafjörð. Þar veiddi ég vel af gæs og Unnsteinn vinur minn frá Grundarfirði heimsótti mig og veiddi með mér í einn dag en þá fengum við 18 fugla. Á föstudeginum fór ég síðan í Skagafjörð til að gæda fjóra meðlimi úr Byssuvinafélaginu sem ég setti á í fyrra en vegna veðurs í október 2008 urðum við að fresta túrnum. Sem betur fer valdi ég þessa helgi, því það snjóaði þennan föstudag og öll heiðargæsin húrraðist niður á láglendið. Akurinn okkar var fullur af gæs þennan dag og það lofaði góðu fyrir morgundaginn.

Veiðin gekk vel hjá okkur Byssuvinum þessa helgi og voru menn virkilega sáttir með aflann í lok veiðiferðarinnar þrátt fyrir snjókomuna á L79sunnudagsmorgninum en þá sást varla í gervigæsirnar fyrir snjó. Nú er ég mættur í kotið og er að jafna mig eftir 7 daga gæsaveiði, hálf aumur í hægri öxlinni og stirður eftir allt þetta brölt. Það má því segja að haustið hafi skollið á með snjóhríð og látum víðast hvar um landið. Ég heyrði af miklum þrumum í Súgandafirði um helgina þannig að rafmagni sló út í firðinum. Íbúar vöknuðu flestir við hávaðan og muna menn ekki eftir öðru eins.

Framundan er veturinn með sínu atvinnuleysi en ég er nú eins og svo margir í atvinnuleit eftir mikla vinnu í sumar. Hálf kvíði fyrir vetrinum og aðgerðarleysinu en maður verður bara að vera duglegur að sækja um atvinnu hér og þar. Svo teiknar maður eitthvað á milli og lagar til í geymslunni. Ég hef að mestu hætt bloggi á Suðureyrar-síðunni þar sem of mikill tími fór í hana og engin hefur sýnt henni áhuga eftir að ég hætti skrifum þar, hvorki fyrirtæki eða einstaklingar sem hafa áhuga á að endurvekja fréttasíðu Súgfirðinga með styrkjum. En kannski er maður búinn að koma fólki uppá þessa fríu þjónustu svo lengi að það þykir orðið eins sjálfsagt og veðurfréttirnar í sjónvarpinu.

Maður reynir kannski að skrifa eitthvað hér á síðuna í vetur þegar tími gefst til. Ég hef tekið eftir því Robert og jrað það eru ca 30-40 manns sem fara inn á þessa síðu daglega en á sínum tíma kíktu hér um 100 manns inn daglega. En Suðureyrar-síðan sló nú öll met í sumar en þá heimsóttu yfir 600 gestir síðuna á einum degi með rúmlega 6000 flettingum.

Læt þetta duga að sinni. Kannski nennir einhver að lesa þetta eftir þessa löngu pásu!

Róbert

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Róbert Guðmundur Schmidt
Róbert Guðmundur Schmidt
Súgfirðingur í húð og "hár" hvert sem það nú fór...!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband